Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Grikkir fóru snemma að keppa við Kartverja og
leita norður með ströndum, og hafa líklega komizt allt
norður í Eystrasalt; gamlir grískir peningar (frá 5. og 6.
öld f. Kr.) hafa fundizt þar sumstaðar í jörðu, og bendir
það á mjög fornar samgöngur milli landanna. Massilía
byggðist 600 árum fyrir Krists burð, og varð snemma
forkólfur grískrar verzlunar og nýlendustofnana þar vestra;
þaðan byggðust nýlendur með ströndum Frakklands og
Spánar. I Massilíu blómgvuðust listir og vísindi langt
fram eptir öldum, að því er rómverskir rithöfundar segja.
Lítið vita menn um norðurferðir Fönikíumanna og Grikkja,
því i þá daga var leturgjörð fátið, enda eru mörg af
hinum eldri ritum fyrir löngu týnd. Pyþeas sá, sem fyrr
var getið, fór langferðir norður til Bretlands, til Thule og
með ströndum Európu til Raf-landsins, sem líklega hefir
verið við Eystrasalt; Pyþeas hefir líklega verið á ferðum
einhvern tíma á árunum 330—20; hann ritaði bækur um
ferðir sínar og athuganir, en þær eru nú týndar. [1] Fornir landfræðingar tóku ýmsa kafla úr ritum Pyþeasar í sínar
bækur; það eru því allt sundurlausar smágreinir, sem
nú eru til, flestar umsnúnar og afvega færðar, og ekki
gott að geta í eyðurnar.
Strabó og aðrir landfræðingar til forna lögðu ekki
mikinn trúnað á ferðasögur Pyþeasar, en þó hæla þeir
honum fyrir kunnáttu í mælingarfræði og stjörnulist.
Pyþeas hefir verið mikill vísindamaður, eptir því sem þá
gerðist. Það sést á ritbrotum þeim, sem eptir Pyþeas
liggja, að hann hefir í mörgu skarað fram úr
samtíðarmönnum sínum; hann ákvað stöðu himinpólsins, mældi
sólarhæð með sólspjaldi og ákvað með því breiddarstig
Massilíuborgar furðu vel og nákvæmlega. Pyþeas var
hinn fyrsti, sem sýndi fram á, að flóð og fjara kæmu af
áhrifum tunglsins; hann getur líka um flóðhæðina við
Bretlandsstrendur, en gerir hana of mikla; Grikkjum hefir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>