- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
13

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

heita fullsannað, að svo er ekki. Karl Müllenhoff heldur,
að Thule hafi verið ein af Hjaltlandseyjum og eru ýmsir
aðrir á hans máli, [1] aptur á móti ætlar Keyser, Sv.
Nilsson og Brenner, að Thule sé Noregr eða Skandínavía; [2]
Malte Brun hélt að Thule væri Jótland (Thy), Rudbeck
að Thule væri Svíþjóð o. s. frv. Af seinní mönnum hefir
Müllenhoff ritað einna mest og bezt um Pyþeas og um
þekkingu fornþjóðanna á norðurhluta Európu; ritgjörðir
og bækur vísindamanna um þetta mál skipta hundruðum.
Þó nú mörg af ritum þessum hafi mjög aukið þekkingu
manna á sögu rannsóknanna og landfræðinnar, þá
er það þó enn með öllu óvíst, hvaða land það var, sem
Pyþeas kallaði Thule, enda má oss Íslendingum standa á
sama, úr því, það er ekki hægt að finna fullnægjandi
líkur fyrir því að Thule sé sama og Ísland. Aðalfjöldi
fornra höfunda kallar það allt Thule, sem er ókunnugt í
norðri; seinna héldu Rómverjar að Hjaltland eða einhver
af Orkneyjum væri Thule, og á 6. og 7. öld hafa sumir
rithöfundar sett þetta nafn á Noreg eða Skandínavíu.
Líklega geta menn aldrei ráðið gátuna um ferðir Pyþeasar
til Thule, áf þvi frumritin eru glötuð og ritbrotin,
sem til eru hjá öðrum höfundum, eru eflaust umsnúin og
aflöguð.

2. Fornar sagnir um Ísland áður en það fannst.



Hjá ýmsum miðaldahöfundum er getið um Ísland og
það sett í samband við viðburði, er gerzt hafa löngu
áður en landið fannst; sést það berlega, að slíkt eru
skröksagnir eða ýkjur seinni manna, og sanna þær alls ekki

[1] K. Müllenhoff: Deutsche Altertumskunde. Berlin 1870, I.
Ziegler: Reise des Pytheas. Dresden 1861.
[2] Keyser: Norges Historie. Kristiania 1866, I., bls. 33. S.
Nilsson:
Skandinaviska Nordens Urinvånare. 2. Upl., II.
Broncealderen. Stockholm 1862—64. Oscar Brenner: Nord- und
Mittelevropa in den Schriften der Alten. München 1877. bls. 29—34,
91—101. G. M. Redslob: Thule. Leipzig 1855.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0027.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free