- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
23

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

ok var þá skógr milli fjalls
ok fjöru.

um vetrinn. Því kallaði
hann þar Húsavík. Náttfari
var eptir með þræl sinn
ok ambátt; því heitir þar
Náttfaravík. Garðarr sigldi
austr aptr, ok lofaði mjök
landit, ok kallaði Garðarshólm. [1]

Í Hauksbók stendur frásögnin um Garðar á undan
kaflanum um Naddað. Seinna í Landnámu (IV. 4) er
getið um Una Garðarsson; hann fór til Íslands með ráði
Haralds konungs hárfagra og ætlaði að leggja undir sig
landið; þar er hann nefndur »Uni, son Garðars, er fyrst
fann Ísland,« og sýnist það benda til þess, að Garðar hafi
fyrr komið til Íslands en Naddaðr; Sturla telur Sæmund
fróða heimildarmann fyrir því, að Naddaðr hafi komið hér
fyrstur, en Hauksbók getur engrar heimildar, og því hafa
fleiri lagt meiri trúnað á orð Sturlu Þórðarsonar.

Það sýnist þó vera undarlegt, hvers vegna Haukur
hefir vikið frá frásögu Sturlu lögmanns að orsakalausu,
úr því hann hafði fyrir sér Sturlubók, eptir því, sem hann
sjálfur segir: »Þessa bók ritaða ek Haukr Ellinzsun eptir
þeirri bók, sem ritað hafði herra Sturla lögmaðr Þórðarson,
hinn fróðasti maðr, ok eptir þeirri bók annari, er
ritað hafði Styrmir hinn fróði, ok hafða ek þat or hverri
er framar greindi, en mikill þorri var þat er þær sögdu
eins báðar.» (Ldn. V. cap. 15.). Í tveim gömlum latneskum
ritum um sögu Noregs er getið um fund Íslands, er
annað þeirra eptir Þjóðrek munk og ritað um miðja 12.
öld, hins hefir áður verið getið, og heitir það »Breve
Cronicon Norvegiæ», og er ritað á 15. öld; í hvorugu
þessu riti er getið um Naddað víking, en á báðum


[1] Landnáma I. cap. 1. Íslendingasögur I. 1843, bls. 22-28. Sbr.
Fornmannasögur I., bls, 234-35, XI., bls. 411-412.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0037.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free