Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
afrétti kynntu menn sér lítt, og þeirra er sjaldan getið í
sögunum; þó hafa til forna verið margar byggðir lengra
uppi í landinu en nú eru; hafa sumar síðan eyðzt af
harðindum og sumar af manndauða, þegar svartidauði
gekk yfir landið, en sumar af jarðeldum, öskufalli og
jökulhlaupum. Eg ætla að nefna stuttlega hinar helztu
eyðibyggðir uppi í landi, sem eyðzt hafa snemma. Úlfur
son Gríms ens háleyska, nam land milli Hvítár og Suðurjökla
og bjó í Geitlandi; þar er nú engin byggð, og hefir
hún líklega snemma eyðzt, því í hinum elzta hluta af
Reykholtsmáldaga (um 1185) er talið til Reykholtskirkju
»geitland meþ scoge«; [1] sagnir eru til um það, að Geitland
hafi eyðzt af jarðeldum og hraun runnið yfir bæinn, gamla
Reykholt. Bersi goðlaus nam fyrstur Langavatnsdal [2] og
síðar varð þar töluverð byggð, en dalurinn hefir verið í
eyði síðan í svartadauða eða fyrr, því 1354 á Hítardalur
afrjett á Langavatnsdal. [3] Á norðurlandi hafa ýms lönd
verið byggð, sem nú eru í eyði; Grenjaður Hrappsson nam
t. d. land í Þeigjandadal [4] og þar varð síðan töluverð
byggð, sem nú er í eyði. [5] Upp af Kelduhverfi eru
margar bæjarrústir fornar, en þar er nú engin byggð. Þá er
Króksdalur upp með Skjálfandafljóti; þar hefir áður verið
grösugt land og ýmsir bæir, nú er þar allt upp blásið, en
merki sjást þar til rústa, og fornmenjar hafa fundizt þar
nokkrar. [6] Á austurlandi hafa fjölda margir bæir farið í
eyði, á Möðrudalsöræfum, efst á Jökuldal, í Hrafnkelsdal,
Laugarvalladal og viðar. [7] Flestar byggðir hafa þó eyðzt
á Suðurlandi; upp af Hreppunum hefir til forna verið
allmikil byggð, og sjást hér og hvar gamlar bæjarrústir
upp eptir heiðunum fyrir austan Hvítá. Þjórsárdalur
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>