Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
eyddist af eldgosum og sandfoki, líklega mest af Heklugosum
á 14. öld. Þórsmörk fyrir norðan Eyjafjallajökul
var byggð á landnámstíð; Ásbjörn Reyrketilsson og
Steinfiðr bróðir hans námu þar land fyrir ofan Krossá fyrir
austan Fljót. Ásbjörn helgaði landnám sitt Þór og kallaði
Þórsmörk, [1] þar er getið ýmsra bæja; sagt er að byggð
hafi eyðzt þar á 14. öld, að sumra máli af eldgosum. [2]
Auk þess hafa mörg önnur héruð næst sjó eyðzt af
eldgosum og jökulhlaupum. Katla hefir eytt Dynskógahverfi,
Nautadölum og Lágeyjarhverfi; byggðarlagið Skjaldbreið
fyrir suðaustan Síðu segja menn hafi eyðzt á 14. öld, og
við hlaupin miklu úr Öræfajökli á 14. öld, eyddist Litlahérað
og Ingólfshöfðahverfi. [3]
Óbyggðir á hinu innra hálendi Íslands voru seint
kannaðar og lítið er þeirra getið í elztu sögunum, af því
þær svo sjaldan snerta viðburði, sem í frásögur eru færðir.
Ein hin elzta frásögn um ferðir í öræfum Íslands er
sögnin um Gnúpa-Bárð, og er hún nokkuð forneskjuleg.
Bárður var líklega einn af þeim fyrstu, er nam land í
Þingeyjarþingi; Guðbrandur Vígfússon heldur, að hann hafi
verið fæddur um 840, og komið út hingað, þegar hann
var hniginn á efra aldur. Bárður nam Bárðardal allan
upp frá Kálfborgará og Eyjardalsá og bjó að Lundabrekku;
hann markaði þar af veðrum, að landviðri voru
betri en hafviðri, og ætlaði af því betri lönd fyrir,
sunnan heiði; »hann sendi sonu sína suðr um gói; þá fundu
þeir góibeitla ok annan gróðr; en annat vár eptir, þá
gerði Bárðr kjálka hverju kykvendi, þvi er gengt var, ok
lét hvat draga sitt fóðr ok fjárhlut; hann fór Vonarskarð,
þar er síðan heitir Bárðargata; hann nam síðan Fljótshverfi,
ok bjó at Gnúpum; þá var hann kallaðr Gnúpa-Bárðr.« [4]
Þetta var snemma á landnámstíð líklega fyrir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>