Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
á þeim tímum; menn færðu ekki í letur neinar lýsingar
á landinu eða náttúru þess og gátu staðanna að eins;
þegar þeir snertu einhverja sögulega viðburði.
5. Menntun fornmanna, ferðir þeirra og landaþekking.
Áður en vér förum nánar að tala um það, sem ritað
hefir verið um Ísland til forna, utanlands og innan,
ætlum vér að víkja nokkuð frá aðalefninu og fara nokkrum
orðum um menntunina almennt á þeim tímum, og þá
sérstaklega um þekkingu manna á þjóðum og löndum;
ritin eru samvaxin sínum tíma og geta ekki skilizt án hans,
og framsókn til fullkomnari þekkingar er bundin við ótal
ytri og innri skilyrði, samgöngur og stjórnarskipun,
trúarbrögð og tilbreytingar af ýmsu tagi. Einkum þarf þó
mannkynið að vera komið á töluvert þreskastig, áður en
þekking á löndum og íbúum þeirra er komin i rétt horf
og glögglega fram sett í ritum og ræðum, því þar er
margt að athuga og marga villu að varast, einkum
framan af, áður en náttúruvísindin fara að skapast og menn
hafa fengið glögga hugmynd um það, að náttúra og mannlíf
fylgja vissum lögum. Það er því ekki undarlegt, þó
landlýsingar til forna séu fremur lélegar og blandaðar
hindurvitnum og hjátrú, enda kemur varla nokkurt
verulegt vísindasnið á landfræði og mannfræði fyrr en á
þessari öld; mega menn því ekki dæma of harðlega það
sem fornt er, þó oss sýnist það æði barnalegt og ólíkt
því, sem menn mundu rita og hugsa nú á nítjándu öld.
Það voru einkum tveir þjóðflokkar, sem snemma á
miðöldunum urðu frömuðir þekkingar og menningar og
því nær ósjálfrátt komu hreyfingu á andlegt og
líkaralegt líf norðurálfumanna í ýmsum greinum; báðar
þessar þjóðir voru hraustar og harðfengar og brutu undir sig
lönd og þjóðir með miskunnarlausri harðneskju. Það voru
Arabar að sunnan og hinir norrænu víkingar að norðan.
Báðar þessar hermannaþjóðir þutu á stuttum tíma yfir
mikil landflæmi og fengu meiri þekkingu á löndum og
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023
(aronsson)
(diff)
(history)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0049.html