- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
36

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

þjóðum en nokkrir aðrir í þá daga; það gat ekki hjá því
farið, að slíkar ferðir og sambland við margar þjóðir hefðu
mikil andleg áhrif á jafn gáfaða menn, þegar þeir spektust
og tóku til friðsamlegra starfa. Arabar höfðu fjarska
mikil áhrif á vísindin, enda voru þeir betur settir, því
braut þeirra lá yfir öll hin miklu menntalönd fornaldarinnar;
það varð þeirra hlutverk að kenna Európu að
meta vísindi fornaldarinnar og að leggja hinn fyrsta
grundvöll í verklegum fræðum, náttúruvísindum og
stærðfræði. Norðurlandabúar sköruðu fram úr öllum öðrum í
siglingum og sjómennsku; þeir urðu kennarar í þessari
grein og forfeður hinna miklu farþjóða, er nú ráða mestu
í heiminum; vísindin gátu ekki orðið jafn margbrotin hér
nyrðra, af því enginn grundvöllur var á að byggja, en
þó spruttu hér upp í norðrinu þau sögurit, sem bera
langt af öllum sams konar ritum í þá daga, í öðrum
löndum Norðurálfunnar.

Bæði Arabar og Norðmenn þekktu fleiri lönd en
flestar aðrar þjóðir er þá voru uppi. Arabar þekktu
mikinn hluta Asíu og Afríku; upplöndin í báðum þessum
álfum þekktu þeir svo vel, að menn hafa fyrst á þessari
öld fengið betri þekkingu á þeim héruðum. Norðmenn
þekktu allar vesturstrandir Európu, Eystrasalt og
Miðjarðarhaf; þeir herjuðu allt austur í Miðjarðarhafs botna,
stofnsettu ríki á Írlandi, Skotlandi, Englandi, Frakklandi,
Ítalíu og Rússlandi; þeir sigldu norður fyrir Noreg austur
í Hvítahaf, fundu Færeyjar og Ísland, og svo fundu
Íslendingar Grænland, Helluland og Vínland, sigldu norður
á Svalbarð í Hafsbotnum norðan til á austurströndu
Grænlands, fóru norður á Króksfjarðarheiði vestan við
Grænland, norður i Smithssundi o. s. frv. Sýna allar
þessar ferðir, hve ótrúlegt þol og dugnaður hefir búið í
þessum sæförum; þeir létu ekkert á sig fá, en brutust
fram gegnum ísa og klungur með illan útbúnað á
smáum skipum. Landaþekking hinna fornu Íslendinga hefir
því auðsjáanlega náð yfir mikið svæði, þó tiltölulega lítið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0050.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free