- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
41

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

kunningjar mínir«. [1] Hins vegar sést þó, að menn hafa á Íslandi
álitið þá af sömu þjóð, er töluðu norræna tungu; þessvegna
stendur í Grágás: »þann mann scal eigi í dóm
nefna, er eigi hefir mál numit í barnæsku á danska
tungu, áðr hann hefir iij vetr verit á Íslandi eþa lengr«. [2]

Sumir Íslendingar fóru eins og kunnugt er til annara
konunga en Noregskonunga, færðu þeim drápur og þágu
verðlaun fyrir; sumir gengu á mála í Miklagarði,
sumir fóru austur í Garðaríki eða lögðust í víking
og kynntust þá mörgum þjóðum og löndum. Hér tek
eg að eins fáein dæmi, sem flest eru alkunn. Egill
Skallagrímsson og Þórólfur herjuðu um Austurveg og
gerðu strandhögg á Kúrlandi, sigidu kring um
Danmörku, niður með Fríslandi og suður með Saxlandi
og Flæmingjalandi og svo til Englands; þar létu þeir
primsignast og gengu á mála hjá Aðalsteini Englakonungi
með 300 manna. [3] Gunnlaugur ormstunga fer frá
Noregi til Aðalráðs konungs á Englandi, þaðan til Sigtryggs
konungs í Dyflinni, svo til Sigurðar jarls Hlöðverssonar
í Orkneyjum, þaðan til Konungahellu og upp í Vestragautland
til Sigurðar jarls í Skörum, svo til Olafs konungs
í Eiríkssonar í Uppsölum, svo aptur til Aðalráðs
konungs á Englandi, svo til Þrándheims og svo heim til
Íslands með Hallfreði vandræðaskáldi. [4] Gunnar á
Hlíðarenda fór í hernað með Kolskeggi og Hallvarði hvíta og
herjuðu þeir um Austurveg og sigldu þaðan með tíu skipum
til Heiðabæjar til þess að hitta Harald Gormsson;
síðan fór Gunnar norður til Þrándheims á fund Hákonar
jarls. [5] Kolskeggur fór seinna úr Noregi til Danmerkur


[1] Fornmannasögur IV., bls. 133—34.
[2] Grágás. Útg. V. Finsen. Kmh. 1852. Þingskapaþáttur 20.,
bls. 38.
[3] Sagan af Agli Skallagrímssyni. Reykjavík 1856. kap. 46.—50.,
bls. 89—102.
[4] Gunnlaugssaga ormstungu. kap. 6.—10. Íslendingasögur 1847.
II., bls. 221—243.

[5] Njála. Kmh. 1772. kap. 28.—31.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0055.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free