- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
42

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

til Sveins konungs tjúguskeggs og tók þar skírn, fór svo
austur í Garðaríki og var þar einn vetur; þá fór hann
þaðan út í Miklagarð og gekk þar á mála; spurðist það
síðast til hans, að hann kvongaðist þar og varð höfðingi
fyrir Væringja-liði og var þar til dauðadags. [1] Helgi og
og Gríraur Njáls synir voru hirðmenn Sigurðar jarls í
Orkneyjum, og voru í herferðum á Skotlandi og Mön. [2]
Björn Breiðvíkingakappi fór suður til Danmerkur og þaðan
suður til Vindlands til Jómsborgar; þá var Pálnatóki
fyrir Jórasvíkingam. Björn gekk í lög þeirra og var
þar kappi kallaður. [3] Þorvaldur víðförli var sem kunnugt
er í bardögum með Sveini konungi tjúguskegg á Bretlandi,
fór síðan með Friðreki biskupi heira til Íslands, til
þess að boða kristni, og fór síðan um mestalla Evrópu og
austur til Jórsala og Miklagarðs og síðan til Garðaríkis,
stofnsetti þar klaustur og dó þar. [4] Hörður Grímkelsson
var 15 vetur utan í einu og hafði orðið gott til fjár og
virðinga; hann átti gautlenzka jarlsdóttur. [5] Bolli Bollason
sagði við Ólaf konung, að það hefði verið ætlun sin,
er hann fór af Íslandi, að eigi skvldi til hans spyrjast í
næsta húsi; fór hann síðan austur í Miklagarð og kom
sér i »Væringjasetu« og var þar mörg ár. Þegar Bolli
kom aptur heim til Íslands úr utanförinni, var hann svo
mikill skartsmaður, að hann vildi engin klæði bera nema
skarlatsklæði og pellsklæði og öll voru vopn hans
gullbúin. [6] Í Hrafnkelssögu er getið um Þorkel Þjóstarsson,
sem hafði verið sjö ár utan og verið í Miklagarði og var
handgenginn Garðskonungi. [7] Þorsteinn sonur Vígastyrs
elti Gest Þórhallason alla leið suður í Miklagarð; [8] hið sama


[1] Njála. kap. 82.
[2] Njála. kap. 86.—87.
[3] Eyrbyggja. Leipzig 1864. kap. 29., bls. 52.
[4] Biskupasögur I., bls. 25, 48—49.
[5] Íslendingasögur II., 60, 118.
[6] Laxdæla. kap. 73. og 77.
[7] Hrafnkelssaga. Kbh. 1847, bls. 13.
[8] Íslendingasögur II., bls. 304

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0056.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free