Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
í klaustrura og spítölum, er lágu við þjóðbraut, og hefir
það eflaust hjálpað mörgum áfram. Í þá daga kunnu
allir lærðir menn latínu og var það töluverður hægðarauki
fyrir pílagríma, að geta gert sig skiljanlega fyrir
lærðum mönnum í löndunum, er þeir fóru yfir, því fáir
hafa verið líkir Halli Teitssyni biskupsefni, sem »mælti
alstaðar þeirra máli, sem hann væri alstaðar þar
barnfæddr, sem þá kom hann«. [1] Á Rínarhólma nálægt því,
er fljótið fellur úr Bodenvatni, var stofnað klaustur á dögum
Karlamagnúsar; þar hét Reichenau; klaustrið gjörðist
auðugt og munkarnir tóku með mikilli gestrisni móti
pílagrímum, er suður gengu og veittu þeim beina og hjúkrun;
snemma á 9. öld tóku munkarnir upp þann sið, að
rita í bók nöfn allra þeirra pílagríma, er þar gistu og
héldu þessum vana fram um alla 9., 10. og 11. öld; bók
þessi er enn þá til og á henni eru meðal annars talin nöfn
39 suðurgöngumanna frá Íslandi (Hislant terra). [2] Sést á
þessu, hve suðurgöngur hafa verið tíðar frá Íslandi í þá
daga, því víða lágu leiðir um til Rómaborgar annarstaðar
en þar; hvergi í íslenzkum sögum er getið um Reichenau
og ekki þekkjast nein af nöfnunum, nema ef vera skyldi
eitt, enda hafa sjálfsagt margir fleiri farið suður en getið
er um í sögum og annálum. Sumir Íslendingar rituðu
ferðasögur, eins og t. d. Gissur Hallsson. Um hann segir
svo í Sturlungu: [3] »hann var bæði vitr og málsnjallr;
hann var stallari Sigurðar konungs, föður Sverris konungs.
Hann var ok hinn bezti klerkr, [4] þeirra er hjer á
landi hefir verit. Opt fór hann af landi í brott; ok var
betur metinn í Róma, en nokkurr annarr íslenzkr maðr
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>