Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
hafði verit fyrir hann, af mennt sinni og framkvæmd.
Hónum var víða kunnigt um Suðr-löndin. Ok þar af
gjörði hann bók þá, er heitir Flos Peregrinationis«. Þessi
bók er nú fyrir löngu týnd. Gissur Hallsson var mikill
höfðingi og hinn mesti fróðleiks- og gleðimaður; Sæmundur
Jónsson, bróðir Páls biskups, sagði um hann, að hann
væri »hrókr alls fagnaðar, hvárgi er hann var staddr«. [1]
Nikulás ábóti († 1158) ritaði »leiðarvísir ok borgaskipun«
og segir þar frá því, hverja vegi og hverjar dagleiðir skuli
fara suður til Rómar og svo út til Jórsalalands, og er það
rit enn þá til. [2] Það sést bezt á sögu Páls biskups, hve
tíðar utanferðir klerka hafa verið í þá daga. Páll biskup
ljet telja kirkjur og klerka í sínu biskupsdæmi, sökum
þess, »at hann vildi leyfa utanferðir prestum, ef ærnir
væri eptir í hans sýslu; en hann vildi ok fyrir sjá, ef
svá félli, at eigi væri prestafátt í hans sýslu, meðan hann
væri biskup«. [3] Sumir pílagrímar fóru gangandi suður til
Rómaborgar með staf og skreppu; Þorvaldur frá Vatnsfirði
gekk suður og var þrjú ár í ferðinni; [4] sumir riðu og
voru þá fljótari, t. d. Órækja; hann fann á suðurferð sinni
Valdimar konung hinn gamla og gaf konungur honum
hest þann, er hann reið suður og sunnan. [5] Sturla
Sighvatsson fór til Noregs, þaðan til Danmerkur og svo
suður; Valdimar konungur gaf honum líka hest. »Sturla
tók stórar skriptir í Rómaborg ok var leiddr milli kirknanna
allra í Rómaborg ok ráðið fyrir flestum höfuðkirkjum;
bar hann þat drengilega, sem líklegt var, en flest fólk
stóð úti ok undraðist, barði á brjóstit ok harmaði, er svá
fríðr maðr var svá hörmulega leikinn ok mátti ekki vatni
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>