- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
71

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

undarlegra, að þar heyrðust glögglega kvein sálna þeirra,
er kveljast í þeim eldi«. [1]

Í Konungsskuggsjá er töluvert talað um Ísland og
náttúru þess; þó er þar engin eiginleg lýsing á landinu,
en að eins getið þeirra hluta, sem undarlegir þóttu og
öðru vísi en menn voru vanir í Noregi; bókin ber þó
með sér, að höfundurinn hefir haft allgóða þekkingu á
því, er hann talar um, og reynir að skýra fyrir sér
náttúruviðburðina eptir þeirri þekkingu, er menn þá höfðu;
en ekki er það undarlegt, þó sumstaðar beri á hjátrú innan
um; hún var svo samtvinnuð öllu lífinu í þá daga.
Fyrst er þar lýst hvalategundum í Íslandshöfum;
ýmislegt er þar gott innan um, en margar skröksögur á milli,
og hafa sumar þeirra haldizt hjá alþýðu fram á vora
daga. Því næst er sagt frá eldfjöllum, hverum og landskjálftum,
og ber höfundurinn saman eldfjöll á Sikiley og
Íslandi; hann heldur, eins og þá var títt, að píslarstaðir
séu í eldinum, og er mjög fjölorður um það. Á Sikiley
segir hann, að jarðeldar brenni jörð og tré, en að eldinum
sé öðru vísi varið á Íslandi: »sá eldur, er á Íslandi
er, þá brennur eigi tréð, þó at í sé kastat og eigi
jörðina; enn steina og hart berg þá dregur hann til sinnar
næringar og kveikist þar af sem annar eldur af þurrum
viði og er aldrei svo harður steinn né berg, at hann
bræði eigi sem vax, og brennir síðan sem feitt oleum.
En þó at þú skjótir trénu í eldinn, þá sviðnar þat at
eins og vill eigi brenna«. Höfundurinn reynir að gjöra
grein fyrir, hvernig á landskjálftum og eldgosum muni
standa; hann, segir að grundvöllur landsins muni vera


[1] Chronicon de Lanercost 1201—1346, e codice Cottoniano nunc
primum typis mandatum. Edited by Joseph Stephenson for the
Maitland Club. Edinb. 1839. 4to. bls. 97. sbr. Th. Thoroddsen:
Oversigt over de islandske Vulkaners Historie 1882, bls. 131. Chronicon
de Lanercost er rituð um 1346; þar er Vilhjálmi of snemma gefíð
biskupsnafn, því Pétur var Orkneyjabiskup 1270—1284, en Vilhjálmur
var vígður til biskups 1310 (Íslenzkir annálar 1888, bls. 75, 203,
342 og Diplom. norv. IX., nr. 83, bls. 103-104).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0085.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free