Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
»vaxinn með mörgum æðum og tómum smugum eða stórum
holum. En síðan kunna þeir atburðir at verða annaðhvort
af vindum eður af afli gnýanda gjálfurs at þessar
æðar eður holur verði fullar af vindum svo mjög, at
þær þoli eigi umbrot vindsins og kann þaðan af þat at
koma, at landskjálftar þeir verði hinir stóru, sem verða
á því landi. Nú ef þetta mætti vera með nokkurum
líkindum eður hætti, þá mætti þat vera af því hinu sterka
umbroti, er verður í grundvöllum landsins, at þaðan mætti
eldur sá hinn mikli kveikjast og koma, er brennur upp
í ýmsum stöðum landsins. Nú skal þetta eigi hafa fyrir
sannfræði at svo sé, sem nú höfum vér um rætt, nema
heldur þat, at draga slíka hluti saman til líkinda, er
vænligastir þikir til vera, fyrir því at þat sjáum vér, at af
afli kemur eldur allur; þar sem saman kemur högg harðs
steins og harðs járns, þá kemur þar eldur af því járni
og afli, er þau berjast; trjám mætti og til saman ríða, at
þar fáist eldur af því erfiði er þau hafa«. Aristoteles [1]
kemur fyrstur með þessa kenning um vindana í innýflum
jarðar og Plinius tekur hana eptir honum, en Plinius
var beinlínis og óbeinlínis uppspretta mestallrar
náttúruþekkingar á miðöldunum.
Höfundurinn talar og um hveri á Íslandi og segir:
»þar eru þær keldur, er æ og æ vella ákaflega bæði
vetur og sumar. Nú er stundum svo mikill ákafi á vellu
þeirra, at þær spýa langt í lopt upp vatni úr sér. En
hvað sem menn leggja þar í hjá kelldunum í þeim tíma
er þær spýa, hvort sem þat er klæði eður tré, eður hvat
lítið þat er, ef þat vatn kemur á í niðurfalli sínu, þá
verður þat at steini«. Síðan talar hann um ölkeldur:
»svo er sagt at kelldur séu þær á Íslandi, er menn kalla
ölkelldur, og er því svo kallat, at vötn sem þar eru í
eru líkara þefurinn munngáti en vatni. Og þó menn
drekki þar af, þá fyllast menn ekki af því vatni, svo
sem af öðru vatni, heldur sjatnar það vel og rennur í
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>