- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
76

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

sér matfanga, ok gín yfir beituna, grefr oddhvast ok
uppreitt járnit hans kjapt; síðan fiskimaðr kennir hans
viðrkvámu ok kippir at sér vaðinum, dregr hann svá at
borði ok upp í skip; er þessi fjárafli svá guðgefinn, at
hans tilferð er eigi greiðari en nú var greind, ok þó allt
eins verðr svá mikit megn þessarar orku, at öreigar verða
fullríkir; má ok öll landsbygð sízt missa þessarar gjafar,
þvi at þurr sjófiskr kaupist ok dreifist um öll héruð«
(bls. 176).

Hin fornu tylfta- og fjarðatöl frá byrjun 14. aldar
verður og að telja, þar sem talað er um rit, er snerta
landafræði Íslands; menn halda, að skrár þessar hafi verið
ritaðar um 1312. Í tylftatalinu [1] er sagt, hve langt
Ísland er frá öðrum löndum, hve langt er í kring um landið
og milli helztu annesja, og er dægurssigling notuð sem
mælikvarði. Af tylftatalinu eru 4 afskriptir prentaðar í
»Íslenzku fornbréfasafni« [2] og eru þær sín með hverjum
hætti og allar merkilegar; skulum vér þó ekki tala um
þær nánar á þessum stað, en að eins geta þess, að þar er
talin 7 dægra sigling umhverfis Ísland, »at hröðum byr
ok skiptiz svá sem þarf, því at eigi má eitt veðr hafa«;
»um endilangt Ísland eru taldar 20 dagleiðir á sumardegi,
en 4 um þvert«. Frá sama tíma telja menn, að fjarðatalið
sé; þar eru taldir flestallir firðir kring um Ísland,
og er skrá þessi líka mjög merkileg. Ekki vita menn,
eptir hverja skrár þessar eru; en menn hafa getið þess
til, að þær á einhvern hátt stafi frá söfnum Hauks
lögmanns Erlendssonar.

Árið 1568 kom út einkennilegur bæklingur í Venedig
um ferðir tveggja ítalskra bræðra, Nicolo og Antonio Zeni;
þeir áttu að hafa farið margar ferðir um norðurhöfin á
árunum 1390—1405. Um þenna bækling hafa verið skrifaðar
ótal ritgjörðir, smáar og stórar, og hafa menn haft


[1] Tylft = 12 vikur sjóar.
[2] Íslenzkt Fornbréfasafn III., bls. 13—20; fjarða- og tylftatölin
eru og prentuð i K. Kålunds Historisk-topografisk Beskrivelse af
Island II., bls. 359—375 með nákvæmum athugasemdum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0090.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free