- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
77

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

mjög ólíkar skoðanir um þessar ferðir, um landlýsingarnar
og landabréfið, sem fylgir bókinni. Það liefir fundizt
nú á seinni árum, að bókin er alls ekki eins merkileg,
eins og margir hugðu; en eg set hér samt aðalefni
frásagnarinnar, af því það hefir gefið tilefni til margs konar
sögulegra rannsòkna um fornan kunnugleika erlendra
þjóða í Norðurhöfum.

Nicolo var ungur aðalsmaður frá Venedig; hann bjó
skip sitt og fór vestur um Gibraltarsund og ætlaði að
fræðast um ókunn lönd og þjóðir; hann ætlaði fyrst til
Englands og Flandern, en lenti í hafvillum og braut skip
sitt við eyna Frislanda; þar varð mannbjörg, þó töluvert
af farminum týndist. Nicolo gekk nú með mönnum sínum
í þjónustu ríks höfðingja, er hét Zichmni; þessi
höfðingi réði fyrir Porlanda og fleiri eyjum; hann hafði
átt í bardögum við Noregskonung, en vildi nú leggja
undir sig Frislanda, og hjálpaði Nicolo honum til þess;
náðu þeir landinu á sitt vald og tóku þar mikið herfang,
og meðal annars nokkra farma af saltfiski. Nú skrifaði
Nicolo Antonio bróður sínum bréf og bað hann að koma
þangað norður. Antonio varð við bón hans og settist að
á Frislanda og dvaldi þar i 14 ár. Þeir Zeni-bræður
fóru nú með mikinu flota og herjuðu á eyna Estlanda, er
Noregskonungur átti; í þessari ferð hrepptu þeir mikla
storma og komust með flotann i 7 eyjar, sem liggja við
austurströnd Islands [1] og lögðu þær undir sig; þar varð
Nicolo eptir, en Antonio fór heim aptur til Frislands.
Nicolo fór nú í landaleitir norður á bóginn á 3 skipum
og kom til Engroneland; þar fann hann klaustur og kirkju
helgaða Sankti Tómási, og er hvorttveggja, segir hann,
undir fjalli, sem rýkur eins og Etna og Vesuvius; þar er
heitur hver og er vatninu veitt í klaustrið og kirkjuna
og haft til hitunar og soðninga; þar eru dálitlir urtagarðar
og vaxa í þeim alls konar ávextir og blóm, af því heita


[1] Eyjar þessar heita allar óskiljanlegum skrípanöfnum: Talas,
Broas, Iscant, Trans, Mimant, Damberc og Bres.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0091.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free