Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
niður, en menn rituðu mest helgisögur af jarðteiknum
dýrðlinga, tíðabækur, riddarasögur og annála. Fátt var
frumsamið á 14. öldinni af söguritum; helzt voru það
biskupasögur og annálar, og eru sum þeirra rita mjög
merkileg; aptur létu margir sér annt um framan af öldinni að
safna saman, rita upp og skeyta saman hin eldri rit;
sumt var lagt út úr latínu og öðrum málum, og voru það
þó helzt kynjasögur og riddarasögur. Þegar í byrjun
aldarinnar má sjá þess vott, að sumir klerkar hafa verið
fáfróðir; 1307 voru hingað sendir »visitatores«, Laurentíus
og Björn, og voru þá klerkar settir af fyrir vankunnáttu
sakir: 1341 var Áslákur kórsbróðir sendur til að visitera
land allt, og 1357 komu þeir Eyjólfur Brandsson og
Eysteinn Ásgrímsson til þess að líta eptir kirkjustjórn, því
þá voru sem mestar illdeilur klerka og leikmanna. Framan
af öldinni voru á Íslandi allmargir merkir fræðimenn,
eins og t. d. Laurentíus Kálfsson, Jón Halldórsson, Haukur
Erlendsson, Arngrímur ábóti og Einar Hafliðason. Um
Þorstein Illugason á Grenjaðarstöðum († 1335) er sagt:
»um langan tíma munu sýnast hans handaverk í bókagjörð,
uppkasti ok krossasmíð«. [1] Þegar leið á öldina hafa eflaust
margir klerkar fengizt við að rita upp gamlar sögur og
bréf, en lítið var þá frumsamið það, sem gagn var í
Framan af öldinni voru skólarnir í góðu lagi; Jörundur
biskup hafði skóla á Hólum og tók marga til læringar
og var Óblauður Hallvarðsson skólameistari. Auðunn
biskup hafði þar einnig skóla og voru þeir Egill prestur
Eyjólfsson og Jón prestur Koðránsson skólameistarar, en
í mestum blóma var skólinn, meðan Laurentíus var biskup.
Á Þingeyrum var líka skóli og var það klaustur þá
skipað ágætlega lærðum mönnum. Árið 1308 var að ráði
Hauks Erlendssonar settur lærðra manna spítali í
Gaulverjabæ, og átti hver prestur að gjalda þangað mörk. [2]
Þó menntunin væri farin að rýrna seinni hluta
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>