Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
hafa þeir flestir eflaust fyrirlitið fornar íslenzkar
bókmenntir eða ekki þekkt þær. Verzlunin við Noreg var
nærri alveg hætt; í stað þess verzluðu menn við Engiendinga,
sem jafnan fóru mjög òfriðlega, gjörðu opt strandhögg
og rændu og drápu. Þá gengu yfir landið hinar
voðalegustu stórsóttir, plágan fyrri (1403) og hin seinni
(1493); þær gjöreyddu heilar sveitir að mannfólki; þá
hefir eflaust lagzt niður margur manndómur fyrri tíða,
og sumstaðar byggðust eigi heil héruð upp frá því. Ofan
á þetta bættist óáran og harðir vetrar, og hefir þetta allt
dregið kjark úr mönnum. Þá urðu sumir menn, er heilar
ættir dóu úr drepsóttum, stórauðugir að jarðagóssi,
miklu auðugri en seinna hefir nokkurn tíma orðið. Sumir
af höfðingjum þessum héldu sig rikmannlega og bjuggu
á mörgum höfuðbólum í senn, en ekki er getið um framkvæmdir
þeirra landinu í hag, enda var tíðarandinn svo,
að hver hugsaði mest um sig; helzt er það til tíðinda
talið, þegar höfðingjar halda stórveizlur, og eru þær
allopt nefndar. Þegar nú því nær allar jarðeignir voru í
höndum klerkanna og fárra höfðingja, þá urðu nær allir
bændur leiguliðar; hafa þeir eflaust átt við þungan kost
að búa og bjuggu mest við leigufé landsdrottnanna. Þótt
fáeinir menn væri ríkir, hefir eflaust öll alþýða á þessari
öld lifað við mikla örbirgð.
Á fimmtándu öld réðu Englendingar mjög miklu í
landinu, og þá voru biskuparnir stundum enskir; 1434
var enskur biskup í Skálholti og á árunum 1424—36 voru
þrír enskir biskupar á Hólum, hver eptir annan, og hétu
allir Jónar; það er svo að sjá sem enskir víkingar hafi
þá stundum verið nærri búnir að ná undir sig landinu;
hefði einhver samtök verið meðal Englendinga, eða ef
enska stjórnin hefði verið því meðmælt, hefði landið
eflaust gengið undan Dönum og orðið enskt, því í Danmörku
var óstjórn og flokkadráttur; Íslendingum líkaði
vel verziun Englendinga, þegar þeir fóru með friði, en
miður var þeim um höpt þau og kvaðir, er Danir vildu
leggja á hana; auk þess voru hirðstjórarnir dönsku mjög
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>