Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[116
t
um, er fari meö gripdeildum. I bréfi Norðlinga til Ei-
riks af Pommern, 1. júlí 1419, segir svo: »Kom og yðart
bréf hít i landit til oss í hverju I forbudut oss at kaup-
slage med nokkora útlendska menn. En vorar réttar-
bætr gjöra svo ráð fyrir, að oss skyldi koma sex skip af
Noregi árlega, hvad sem ei hefir komið upp á langa
tima, hvar af ydur náð og þetta fátæka land liefir tekið
grófan skaða, því upp á guðs náð og ydart traust höfum
vi vordit kaupslaga með útlendska menn, sem með frið
liafa farið og réttum kaupningsskap og til hafa siglt.
En þeir duggarar og fiskarar, sem reyfat hafa og ófrið
gjört, þeim höfum vi refsa látið. Nú stár til guðs náð
og yður, að I skrifið oss til livorsu vi mættum bestan
frið hafa og yðar vinskap og hylli®.1 Þar var ekki mik-
ils trausts að leita, þar sem annar eins vindhani var
eins og Eiríkur af Pommern, enda harðnaði nú allt upp
t
úr þessu, og mátti heita sifelldur ófriður milli Islendinga
og Englendinga um nokkurt árabil. 1422—23 rændu
Englendingar á Bessastöðum og á Norðurlandi, í Oiafs-
firði, Hrisey og Grimsey; þeir gjörðu enn víðar strand-
högg, og tóku fénað og menn og færðu burt úr landinu.2
Ekki voru spellvirki þeirra minni 1425; þá herjuðu Eng-
lendingar víða og drápu marga konungsmenn, og hertóku
t
marga Islendinga. Helztu víkingarnir hétu Jón Persy
og Jón Selby; ekki gagnaðist mönnum þá fiskiveiðar né
kaupskapur, því þeir spiiltu veiðarfærum og vörum, og
gjörðu landsmönnum
nærri allt það illt, er þeir gátu.3 Þá
tóku Englendingar báða liirðstjórana, Hannes Pálsson og
Balthasar, höndum í Vestmannaeyjum og fiuttu þá til
Eng-t
lands; voru Islendingum það mikil gleðitíðindi, því
hirð-stjórarnir voru ofstopar og illmenni.4 Var eptir það
meiri og minni ófriður á ári hverju, en þó verzlað við
Englendinga jafnframt; hafa sumir kaupmenn líklega ver-
Safn til sögu íslands II., bls. 173.
2) Árb. Espólíns II., bls. 17—18.
8) Arb. Espólíns II., bls. 19.
*) ísl. ann., bls. 294.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>