Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[149
að leita Grænlands 1579, kom við á Islandi í ágústmán-
uði i Kirkjuvogi fyrir sunnan,1 og Björn á Skarðsá segir,
að Mogens Heinesen hafl á Grænlandsferð sinni 1586 kom-
ið við suður í Höfnum.2 Árið 1607 voru gjörð út tvö
skip til þess að leita austurstrandar Grænlands; Carsten
BicJiardsen réð fyrir þeirri ferð; þóttust Danir vissir um,
að þeir mundu hitta þar afkomendur hinna fornu land-
námsmanna, og því voru nokkrir islenzkir hásetar á skip-
unum, til þess að tala við Grænlendinga; skip þessi gjörðu
ýmsar tilraunir til þess að komast gegn um ísinn við aust-
urströndu Grænlands; komust í miklar hættur og hrakn-
inga, en urðu frá að hverfa við svo búið. Á árunum
1652—54 gjörðu Danir enn þá tilraunir til þess að finna
Austurbyggðina; danskur auðmaður, Hinrik Möiier að
nafni,3 kostaði ferðir þessar, og hafði konungur 15. april
1652 gefið leyfi til þess, að skip lians mættu koma við á
íslenzkum höfnura, og að þau mættu.fiska við Island og
fá sér íslenzka háseta, bæði til vinnu ef þyrfti og eins
sem túlka; eins máttu þeir kaupa kvikfé á Islandi, til
þess að stofna nýlendur á Grænlandi;4 í þá daga var allt
smásmuglega ákveðið, því konungar þóttust einir ráða
öllu, er snerti ísland. Hinrik Möller réð til sín dugleg-
an skipstjóra, David Danell að nafni; hann hefir líklega
verið Hollendingur og varð hann fyrirliði þriggja sendi-
ferða til Grænlands.5 Fvrstu ferðina fór Danell 1652 á
11
t ,
tveim skipum; sigldu þeir norður fyrir Island fram hjá
Grimsey í maímánuði; þar sáu þeir fjölda margar enskar
duggur, sem voru að fiska; héldu síðan vestur undir
Grönlands historiske Mindesmærker III., bls. 642.
2) Annálar Björns á Skarðsá, bls. 147. Pingel beldur, að Mogens
Heinesen haíi farið til Grænlands 1581, en ártalið 1586 á betur við
frásögn Lyschanders i »Den grönlandske Chronicac, sem segir, að
að Friðrik konungur annar hali dáið skömmu eptir að Mogens
Heine-sen kom heim, en konungur dó 4. apríl 1588.
3) Sonur hans var Kristján Möller til Katterup, sem var
amt-maður á íslandi 1688-1707.
*) Lovsamling for Island I., bls. 242-243.
5) Grönlands historiske Mindesmærker III., bls. 713-725.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>