- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
150

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[150

Grænland, og voru þar í mánuð að flækjast í ís fram

með ströndinni, og komusthvergi á land; sigldu svo suð-

ur fyrir landið og komu inn í firði á vesturströndinni. í

* t

júlímánuði sneru þeir aptur til Islands, reyndu um leið

aptur að komast að austurströndinnni, en það tókst ekki;

komu þeir svo 5. ágúst til Reykjavíkur og sendu boð til

Brynjólfs biskups Sveinssonar, þvi hann þekkti þá manna

bezt gamlar islenzkar frásagnir um Grænland, og kom

hann til fundar við þá. Sama ár 3. maí hafði konungur

t

boðið báðum biskupunum á Islandi að láta i té allar upp-

9

lýsingar, er þeir gætu um Grænland.1 Arið 1664, 16.
júli, býður konungur einnig Eiriki biskupi i Þrándheimi,
að senda stjórnarráðinu öll skjöl og bréf um Grænland

9

og Island.2 Aðra ferð til Grænlands fór Danell 1653,

9

og kom hann þá líka við á Islandi og lá 18 daga á
Reykjarfirði, og á heimleiðinni kom hann við á
Bessa-stöðum.

Árið 1670 sendi Kristián V. Otta Aœelsen til
Græn-lands, og aðra ferð hið næsta ár á eptir. Á þeirri hinni
seinni ferðinni hvarf Otti með skipi og mönnum og hefir

9

ekkert spurzt til hans síðan. Þeir Otti komu við á
Is-landi og ætlaði Þormóður Torfason að sigla með þeim
um haustið; hvarf þeirra þótti kynlegt og gengu um það

9

ýmsar sögur á Islandi, eptir þvi sem Þonnóður segir.

9

Otti Axelsen varð ósáttur við hollenzkan skipstjóra á
Is-landi og drap af honum nokkra menn; þá flýðu
Hollend-ingar, en hétu, að þeir skyldu brátt hefna sín; sigldi Otti
þá til Grænlands, en Hollendingar heim til sin; var það
mál manna, að Hollendingar hefðu samsumars komið apt-

9

ur til Islands á stærra skipi, hitt Otta fyrir utan
Garð-skaga á heimleið, ráðizt á hann og skotið skipið i kaf.3
Ekki er gott að vita, hvort nokkuð er satt í þessari sögu;
það er alveg eins liklegt, að þeir Otti hafi farizt í ísum
við Grænland.

Maqnús Ketilsson: Forordninger IIT., bls. 48.

2) Magnús Ketilsson: s. st. III., bls. 117.

s) Grönlands bistoriske Mindesragerker III., bls. 726.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0164.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free