- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
153

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[153

sér, að þeir sjái þá og tali við þá. Þeir ætla, að þeir

sjái kunningja og framliðna menn, af því þeir vita, að

lifandi menn eru þar eigi, og af því þeir hverfa, er þeir

eru faðmaðir, þvi enginn ætlar, að ókennd mvnd t. d.

»chimæra« eða »hippocentaurus«, sé í skýjunum, því öll

myndbreyting verður eptir þekktum hlutum. En hvers

vegna svara vofur þessar, að þær ætli til Heklufjalls?

Hekla er fjall á þessari ey, sem brennur við og við á

sama hátt eins og Etna á Sikiley; þess vegna hafa þeir

myndað sér þá sannfæringu, að sálir hreinsist þar, en

aðrir bæta ósannindum við söguna, svo að þeir verði

ekki álitnir óáreiðanlegir og komist í missögn. Annað

t

eins og þetta, sem opt er sagt að gerist á Islandi,
kem-ur og fyrir alstaðar annarsstaðar, þó sjaldan sé^.1 Það
er ekki gott að komast fram úr þessu hálfvísindalega
moldviðri, en meiningin á víst að vera sú, að svipir þeir,

9

sem Islendingar sjái, séu ekki annað en missýningar, er

verði af eðlilegum orsökum. Nokkru seinna segir líka

Cardanus: »Á sandeyðimörkum Egyptalands, Eþiópíu og

Indlands, þar sem sólarbruni er mikill, leika þessar

myndir og þessir svipir á ferðamenn, alveg eins og á

Islandi«. Cardanus heldur því auðsjáanlega, að svipir og

draugar, er menn þykjast hafa séð, séu ekki annað en

missýningar og hyllingar, og er hann í þvi langt á und-

an samtiðarmönnum sínum, því allflestir trúðu þvi í þá

daga, að þetta væru draugar og púkar, sem sloppið hefðu

út úr hreinsunareldinum eða víti, en væru nú að »frí-

t

lysta« sig á jörðunni og gjöra mönnum skráveifur. I
annari bók nefnir Cardanus líka Island og getur þess, að
Islendmgar gjöri brauð úr þurkuðum fiski.2 Caspar
Peu-cerus tengdasonur Melanchtons, var af allt öðru sauðahúsi
en Cardanus, enda dettur honum ekki i hug að efast um,
að til séu draugar og árar. C. Peucerus var læknir; hann

H. Cardani: De subtilitate libri XXI. Basileæ 1611. 8vo ,
bls. 952-954.

2) H. Cardani: De rerum varietate libri XYII. Basileæ 1581.
8vo., bls. 34.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0167.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free