- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
162

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[162

ir. Um langan tíma höfðu Þjóðverjar óátalið rekið verzl-

un á íslandi, haft þar vetrarsetu og útgjörð til fiskiveiða;

en nú fer danska stjórnin, er henni vex fiskur um hrygg,

að vitna i forn bréf og fornar lagavenjur, er banna út-

lendum verzlun á Islandi; konungur skoðar verzlunina

sem eign krúnunnar, sem hann hafi einn yfirráð yfir, og

vill nú aptur ná rétti þeim, sem undan var genginn.

Árið 1542 gefur konungur út bréf, er bannar eptirliggj-

urum og útlendum kaupskap á Islancli, og hið sama er

endurtekið i alþingisdómi 1545.1 Ennfremur ræðst stjórn-

in á fiskiútgjörð Þjóðverja; 1544 krafði Otti Stígsson höf-

uðsmaður lögmenn báða, Erlend Þorvarðarson og Þorleif

Pálsson, til að dæma um fiskiskip útlendra kaupmanna,

er þeir höf’ðu mót lögum, en drógu landsmenn til að eiga

hlut i tii hilmingar sér; dæmclu lögmenn, að hvað skipa

sem útlendir ætti þannig, skyldu falla hálft undir kon-

t

ung, en hálft undir hirðstjórann, en Islendingar haldi þvi,
er þeir eiga; þetta kölluðu kaupmenn ójöfnuð, og báru
fyrir konung, en hann skaut því til landslaga. Lauk svo
þeim málum, að hirðstjórinn lét dæma konungi fiskiskip
þeirra öll, hálfan fimmta tug, en banna þeim vetrarlegu
að mestu; sagt er, að Danir hafi haldið skipum þeirra í
tvö ár eða þrjú.2 Hið sama var endurtekið á þingi næsta
ár, og voru þá viðstaddir 7 skipstjórar þýzkir og 5
kaup-menn.3 Danir f’æra sig nú meira og meira upp á
skapt-ið, og 1547 gjöra þeir fyrstu atrennuna til þess að steypa
verzlun Þjóðverja; þá leigir Kristián konungur 4. janúar
borgarstjórn Kaupmannahafnar alla tolla og tekjur af
íslandi um 10 ár;4 þetta hafði þó minni áhrif en til var
ætlazt; Danir höfðu eun eigi nóg afl til að keppa við
Þjóðverja.

Um miðbik aldarinnar, þegar ófriðurinn var milli

Espólíns árbækur IV., bls. 11. Magnús Ketilsson:
Forord-ninger I., bls. 248-49. Lovsamling for Island I., bls. 63.

2) Espólíns árbækur IV., bls. 17. Safn II., bls. 686-87.

8) Lovsamling for Island I., bls. 60-63.

4) Magnús Eetilsson: Forordninger I., bls. 255-56, 320-322.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0176.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free