- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
163

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[163

Jóns Arasonar og konungsmanna, veittu þýzkir
kaup-menn kaþólskum mönnum ýmsan styrk, þó þeir sjálfir
væru lútherskir, og opt voru þýzkir menn i ferðum með

Jóni Arasyni; hefðu Þjóðverjar eflaust ekki harmað það,

/

þó landið hefði gengið undan Dönum. I bréfi 15. sept.
1550 til bæjarráðsins i Hamborg ber Danakonungur
Þjóð-verjum á brýn, að þeir hvetji Islendinga til uppreisnar
og trúarvillu;1 Danir héldu jafnvel, að Hamborgarar hefðu
verið milligöngumenn milli Jóns biskups og Karls
keis-ara, til þess að reyna að ráða laud undan konungi.2
Kristján skrifari bar upp á Jón Arason, að hann hefði
»lofað og tilsagt þeim Hamborgar-kaupmönnum, að hann
og hans synir skyldu svo leika og spila við þá Danska,
að hér skyldi ekki einn finnast eptir lifandi að vori
kom-andi«.3 Vist er það og sést á mörgu, að óvinátta mikil
liefir þá verið milli Þjóðverja og Dana hér á landi, þó
ekki væri opinber ófriður,4 enda var eðlilegt, þó
Ham-borgarar reyndu að spyrna á móti, þegar reynt var að
bola þá burt úr landinu. Var sífellt þref út úr þessu
milli Hamborgara og Danakonungs, en þó gátu kaupmenn
frá Kaupmannahöfn lítið á unnið; Islendingar voru orðnir
svo vanir þýzku verzluninni, að þeir eigi sinntu Dönum,
meðan verzlunarkeppnin var nokkurn veginn frjáls; seinna
var verzlunin með valdboðum dregin úr höndum Þjóð.
verja, enda voru þeir sjálfir sundurþykkir sín á millum,
því Hamborgarar vildu vera einir um ágóðann og
öm-uðust t. d. við verzlun Ltibeck-manna,5 og svo var afl og
vald Hansamanna þá stórum að réna.

E. Baasch: Hamb. Handelsgescbichte I., bls. 35.

2) Finnur Jónsson: Historia ecclesiastica II., bls. 674.

s) Biskupasögur II., bls. 466.

4) Af konungsbréíi til Eske Bilde 1551 um sendiför þeirra Axel
Jul og Kristofer Trondssen til Islands sést meðal annars, að
Ham-borgarar hafa átt í brösum við Dani út úr verzluninni, hafa tekið
frá Dönum íisk o. s. frv. Magn. Ketilsson: Forordn. I., bls. 270.
Sbr. Kancelliets Brevböger 1551-55. Kbh. 1885-86, bls. 18. Safn til
sögu Islands II., bls. 691.

B) E. Baasch: Hamb. Handelsgesch. I., bls. 38-39.

11*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0177.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free