- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
192

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[192

guðfræði, en hneigðíst þó helzt að stærðfræði og
stjörnu-fræði. Fabricius varð prestur 1584 og var myrtur 1617
af bónda nokkrum, sem hann hafði dróttað að þjófnaði í
opinberri prédikun. Fabricius gaf út ýms ágæt rit um
stjörnufræði og aðrar vísindagreinir og hann gerði
mæl-ingar og uppdrætti af nálægum héruðum; en frægastur
er hann orðinn fvrir það; að hann með syni sínum fann
fyrstur sólblettina og lýsti þeim 1611. Það sýnir bezt,
hve menn í þá daga voru auðtrúa á allar bábyljusögur
um fjarlæg lönd, að annar eins maður og Fabricius skyldi
glæpast á að trúa skröksögum Blefkens og verða til að
breiða þær út, þvi efnið í bók hans er að miklu leyti
tekið úr riti Blefkens.1 Þó nú Fabricius trúi mörgum

r

sögum Blefkens um Islendinga, þá er hann þó of
mennt-aður til þess að taka allt fyrir góða og gilda vöru, er
Blefken segir um hinar almennu landfræðislegu
liugmynd-ir, legu landsins, sólarganginn o. s. frv.

Fabricus segir, að miðbik íslands liggi á 65J/2° n.br.
og fjarlægðin frá hádegisbaugnum um Ferro sé hérumbil
14°; það sé því hér um bil 260 mílur frá Þýzkalandi til

r

Islands; hann segir, að landið sé frá austri til vesturs 20
dagleiðir á lengd og á breidd 4 dagleiðir, þar sem það
sé breiðast; að ummáli muni það ekki vera yfir 288 míl-

r

ur þýzkar. Sumir kalla Island Snjóland og margirlærðir

r

menn hafa haldið, að Island væri land það, er Rómverjar
kölluðu Thule, »en eg trúi því ekki« — segir hann — »af
þeirri einföldu ástæðu, að landið fannst ekki fyrr en 874
e. Kr.« Fabricius segir ennfremur, að Norðmenn hafi

r

numið lancl á Islandi sökum ófriðar, er þeir áttu i við
konung sinn. Þegar Fabricius i 4. kapitulanum fer að
lýsa íbúunum, fer að slá út i; þá fylgir hann alveg Gories

David Fabriciits: Van Isslandt unde Grönlandt, eine korte
beschryvinge uth warhafíen Scribenten mit vlyte colligei-et unde in
eine richtige Ordnuung vorfahtet. s. 1. 1616. Uno Troil segir, að
þessi útgáfa sé prentuð í Rostoch; bókin er líka prentuð i
Ham-borg 1639, og nýlega út geíin á ný af Karl Tannen í Bremen
1890. 8vo.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0206.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free