Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[196
kunnu það máí. Dálítil skólamynd hefir þó eflaust verið
í Skálholti um 1500; séra Jón Egilsson segir um Stefán
biskup Jónsson (1491—1518):« hann var vel lærður og
hans iðja ekki annað en kenna«,x og um 1493 var As-
björn Sigurðsson skólameistari í Skálholti;2 á Hólum er
einnig sagt, að hafi verið skóli á dögum Gottskálks bisk-
ups Nikulássonar (1498—1520).3 Við klaustrin hélzt nokk-
ur menntun og fróðleikur; á Helgafelli ætla menn t. d.,
að Narfi ábóti hafi haft skóla á árunum 1512—27; þar
lærði Magnús Eyjólfs son mókolls;4 og á Munkaþverá lærði
# t
Jón Arason hjá Einari ábóta Benidiktssyni.5 I
Þvkkva-bæjarkiaustri er getið um nokkurn lærdóm framan af 16.
öldinni og þar var töluvert af bókum, sem Gissur Einarsson
naut góðs af, meðan hann dvaldi þar.6 Það er sagt um
síra Sigurð Jónsson á Grenjaðarstað, að hann hafi opt
haft ríkra manna syni til kennslu hjá sér.7 Gísli biskup
Jónsson lærði og að lesa, skrifa og syngja hjá Alexíusi
Pálssyni presti á Þingvöllum;8 Alexíus varð seinna ábóti
í Viðey sem kunnugt er. Klaustralærdómurinn liefir í
þá daga verið mjög lítill í samanburði við það sem áður
var, enda voru munkarnir fáir rétt fyrir siðaskiptin.9 Þó
nú prestlingar gætu fengið örlitla fræðslu i hinum fyrstu
frumfræðum hjá einstökum mönnum eða á klaustrunum,
þá var menntunin i heild sinni á mjög lágu stigi og bók-
Safn til sögu Islands I., bls. 50.
2) Safn I., bls. 656. Árb. Espólíns HI., bls. S.
8) Jón Þorkelsson: Digtningen paa Island, bls. 9.
4) Árbækur Espólíns III., bls. 37.
6) Biskupasögur II., bls. 326. I Sigurðarregistri er 1550 nefnd
»skólabaðstofa« á Munkaþverá.
6) Safn til sögu Islands I., bls. 676.
7) Annálar Björns á Skarðsá, bls. 56.
8) Finnur Jónsson: Historia eccles>iastica Islandiæ III., bls. 297.
9) Árið 1542 voru í Skálholtsbiskupsdæmi 150 prestar alls og í
öllum (5) klaustrunum þar 18 munkar og 7 nunnur. I Skrið uklaustri
var príor og 3 bræður, á Þykkvabæ ábóti og 5 bræður, í Viðey 4
bræður, á Helgafelli ábóti og 3 bræður og í Kirkjubæ abbadís og
6 systur. Bréfabók Gissurar biskups Einarssonar. Sbr. J. S. hdrs.
nr. 375. 4to.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>