- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
197

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[197

menntirnar engvar. Þó hefir eflaust ýmislegt verið
skríf-að upp af hinu forna, en flestir hafa skrifararnir líklega
fengizt við að rita tíðabækur; Jón Egilsson segir um Jón
nokkurn Þorlákson, sem var afbragðs skrifari, að hann
hefði skrifað flestar messubækur á Yestfjörðum.1 Síra
Sveinn sá, sem líf fékk á Kirkjubóli, er Kristián skrifari
var veginn, var kallaður »meistaramaður upp á skrif og
latínu«;2 sýnir þetta með öðru, að stöku menn hafa
hald-ið við fornri kunnáttu.

I lok fimmtándu aldar voru prestar og biskupar því

nær einvaldir á Islandi; í.lþýðan var hneppt í liinahörð-

ustu fjötra hjátrúar og vankunnáttu, og hefir prestum

liklega varla þótt taka því að mennta sjálfa sig; engin

h\ öt var til þess og ekkert tækifæri; það var álitinn

nógur lærdómur fyrir prest að kunna að lesa, skrifa og

syngja,3 og með slíkum lærdómi gat hann náð æðstu völd-

um kirkjunnar, ef kringumstæðurnar voru heppilegar og

maðurinn nógu einarður og ásælinn. Klerkarnir voru

búnir að ná undir sig öllum beztu fasteignum landsins og

áttu alstaðar itök, þar sem eitthvað var fémætt að fá;

leikmanna-höfðingjar voru fáir, þeir er nokkurn styrk

höfðu, svo kirkjan gat hæglega ráðið við þá, og skömmu

fyrir siðaskiptin höfðu biskuparnir eigi að eins allt kirkju-

valdið, heldur voru jafnvel hirðstjórar og umboðsmenn

t

konungs yfir öllu lr’nu veraldlega. I þá daga leyfðu

prestar sér allt, og má færa til þess mörg dærni, hve

miklir ofstopar þeirvoru; sumir urðu jafnvel uppvisir að

glæpum; Jón prestur Snorrason hafði drepið tvo menn,

sært annan prest og farið með rán og gripdeildir, en

sarnt messaði hann og hélt embætti sínu óskertu; en þá

varð honum það á, að hann rændi tveim köplum úr lest

Hólastaðar suður á Suðurnesjum og valdi Hólabiskupi

t

mörg voncl orð; það þoldi Olafur biskup Rögnvaldsson

t

Safn til sögu Islands I., bls. 57.

2) S. st. I., bls. 98.

3) Finnur Jónsson: Historia ecclesiastica III., bls. 129.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0211.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free