- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
198

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[198

ekki, en setti hann af og hótaði honum bannfæringu.1
Prestur sá, er Þorkell hét, lét í tíð Stefáns biskups smíða
sér lykla að Skálholtskirkju og stal þaðan gulli og silfri.2
Þórður prestur Einarsson i Hitardal hafði átt 5 börn í
frillulífl, flogizt á við annan prest, og margt fleira
sak-næmt bar Ögmundur biskup honum á brýn. Siðleysi
prest-anna var mikið í þá daga; kaþólskir klerkar máttu ekki
giptast, en mjög margir þeirra höfðu trillur og gátu við
þeim börn. A 15. öld er getið um tvo merkispresta,
Þorkel prest Guðbjartsson og Sveinbjörn Þórðarson
offi-cialis; átti hinn fyrri 30 börn, hinn síðari átti 50 börn,
er hann kannaðist við, og að auk alla hálfrefl.3 Fyrir
siðaskiptin urðu prestar að borga biskupi tvö eða hálft
þriðja hundrað fyrir hverja barneign;4 þó var þvi ekki
allt af fram fylgt. Siðir leikmanna voru ekki betri, og
löguðust ekki fyrr en löngu seinna.

Lítt gátu leikmenn bugað ofstopa klerkanna, ogekki
voru margir, sem sýndu aðra eins röggsemi eins og Björn
Guðnason, er hann lét afhýða Jörund prest,5 sem Stefán
biskup hafði sent til hans með bannfæringarbréf. Árið
1517 gera leikmenn loks samtök i Leiðarhólmi, til þess
að hepta ágang biskupa og presta; segjast þeir þar viija
»vort frelsi sjálfra og alls vors afsprengis styðja og styrkja
undan því ánauðaroki, sem yflr oss er komið og áiagt
af kirkjunnar valdi. Vér viijum öllum kunnugt gera, að
vér höfum yfirséð og undirstaðið, samjafnað og sannan
skilning yfirborið, sumir af raun reyndri og framkomnu
verki, og þann stóra skaða fjártjóna, fjármissu og fastra
eigna og annars ósvarlegs ágangs og ofbeldis, er almúgi

Árbækur Espólíns II., bls. 80.

») S. st. III., bls. 7-8.

3) Árbækur Espólíns II., bls. 104, 112.

4) Safn til sögu íslands I., bls. 690.

5) Jörundur prestur bar sig karlmannlega; var bann fyrst
hýdd-ur af tveim mönnum, en er þeir voru þreyttir. fékk Björn hinn
þriðja, er hét Loptur og var tveggja manna maki; sagði prestur þó
við hann: »ljúga höggin þín, langi Loptur:« Safn I., bls. 55.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0212.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free