Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[214
brandur unni. Guðbrandur biskup segir raeðal annars í
bréfinu, að það sé mjög nauðsynlegt að hafa sem
lærð-astan biskup, bæði til þess hann geti hrakið villulærdóma,
veitt skólanum góða forstöðu og aukið menntunina; hann
segir, að það sé sómi og heiður fyrir landið að hafa sem
lærðastan mann í slíku embætti, »sem bæði hefir mennt
og lærdóm guðsorð að kenna og svo mörgum
lastskript-um svar að gefa, sem út eru gengnar um vort föðurland
eða ganga kunna«.
Um daga Guðbrands biskups fóru raenn, sem fyrr
hefir verið frá sagt, bæði Englendingar og Danir, að
forvitnast ura Grænland og fornbyggðir þar; leituðu raenn
t V
þá frétta til Islands, því Islendingar voru hinir einu er
nokkuð vissu um landnára fornraanna á Grænlandi. Guð-
brandur biskup gjörði sitt til að fræða menn ura Græn-
land, því 1606 gjörir hann uppdráttaf Norðurhöfura,1 sem
enn þá er til, og fylgdi riti Arngríms Jónssonar ura Græn-
land. Uppdráttur þessi er allmerkilegur og sýnir, hve
vel Guðbrandur hefir þekkt fornritin um Grænland. Hér
á ekki við að lýsa nákvæmlega því, er Grænland snert-
ir; þó raá geta þess, að Grænland er látið ná norður
fyrir Hafsbotna, norðaustur undir Noreg; eins sýnir Guð-
brandur skipaleiðina fornu til Grænlands og lætur hana
liggja fyrir suðurodda landsins inn í stóra firði suðvestan
í landinu; sést af þessu, að hann hefir ekki hugsað sér
austurbyggðina á austurströnd Grænlands eins og raargir
gerðu i þá daga og eins á seinni tímum. Zenikortið hefir
haft nokkur áhrif á uppdráttinn, þvi Frísland er látið
t
vera mikil ey suður og vestur af Islandi, og heldur Guð-
t
brandur það sé sama og Nýjaland. Mynd Islands er á
þessum uppdrætti i öllum aðalefnum rétt, en
uppdráttur-inn er auðsjáanlega fijótlega gerður, að eins til þess að
sýna almenna legu landanna, og er þvi hið einstaka ekki
*) I stóru konunglegu bókhlöðunni í Kmböfn. Gl. kgl. Saml.
4to, nr. 2876. K. I. V. Steenstrup heíir út geíið uppdrátt þennan í
Meddelelser om Grönland IX. Tab. 2, og fylgja honum ýmsar
skýr-ingargreinar á s. st., bls. 11, 16-18 og 42-44.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>