- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
219

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[219

féll þá undir honura hesturinn og svo hann sjálfur, og

fékk hann áverka af steini í andlitið og bar örið alla

æfi siðan; þóttust sumir hafa séð Loka hrinda hestinum,

Þá tóku Hólamenn það ráð, sem menn áður höfðu haft

við þá, er heitazt höfðu, að þeir riðu upp að Goðdölum;

var Loki grafinn upp og afhöfðaður, og Sigríður látin

ganga milli bols og höfuðs, og svo var búkurinn brennd-

ur. Batnaði Sigríði síðan, þó veikleg væri, en hún varð
/

ei gömul. Ovinir Hólamanna lögðu þeim þetta mjög til
lýta, eigi síður Guðbrandi biskupi en Þorkeli ráðsmanni,
og ætla menn þó, að Guðbrandur biskup hafi engu um
valdið og eigi hafi verið um ráðizt við hann; þó er sagt,
að Gvendur Loki hafi drepið kýr fyrir biskupi, en hann
keypti aðrar og kvaðst kaupa mundu, meðan nokkur
fengist í Skagafirði; létti þá kúadauðanum.1 Óvinir
Guð-brands biskups báru fregnir um þetta fyrir konung,
bisk-upi til ófrægðar, og því var gefin út tilskipunin 25.
fe-brúar 1609; segist konungur hafa frétt, að Islendingar
sumir leggi það i vana sinn, að grafa upp dauða menn,
skera af þeim höfuðið og brenna þá síðan, og bannar
konungur það stranglega.2

Þegar Arngrímur var nýgiptur, flutti hann sig að
Melstað, og bjó þar alla æfi síðan, þó opt hafi hann orðið
að vera lengi í burtu sökum starfa sinna við
biskups-stólinn. Það er sagt, að Arngrímur Jónsson liafi verið
lítill búmaður; þegar sira Erlendur Olafsson
tókviðbrauð-inu eptir sira Arngrím 1648, voru þar t. d. engin hús
fyrir hross. Arngrimur hafði svo mörgu að sinna, að
það var ekki undarlegt, þó hann stundaði miður
búskap-inn; Arngrímur var hinn starfsamasti rithöfundur bæði á
íslenzku og latínu, og liggur fjöldi rita eptir hann; hann

!

Annálar Björns á Skarðsá, bls. 165. Arbækur Espólíns V.

bls. 89.

2) M. Ketilsson: Forordninger og aabne Breve II., bls. 250.
Lovsaml. for Island I., bls. 171-72. Magnús Ketilsson trúir því
auð-sjáanlega, að afböfðunin sé beillaráð gagnvart slikum
aptur-göngum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0233.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free