- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
221

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[221

Jón Ólafssynir (kallaðir Stóradals-bræður), haldið þær;

kom málið undir dóm Lárusar Kruse höfuðsmanns, en þó

var ekkert aðgert i það sinn, því þeir bræður vildu eng-

in skjöl leggja fram fyrir þessum jörðum. Arngrímur

prestur skaut þá málinu til konungs; kom þá út 1591

konungsbréf til Hinriks Krags höfuðsmanns um, að láta

síra Arngrim ná rétti sínum af erfingjum Gottskálks bisk-

ups og dæma málið, hvort sem þeir legðu fram bréf fyrir

jörðunum eða ekki. Þá tók höfuðsmaður mál þeirra Arn-

grims undir dóm 24 manna. Þá voru af mótmælendun-

um lögð fram hin alræmdu »morðbréf«, falsbréf, sum

undir nafni Gottskálks biskups, gerð þeim Guðbrandi og

Arngrími tii skaða og skapraunar. Eitt bréfið var um

Hól og Bessastaði, og i því sagt, að Björg Þorvaldsdóttir,

kona Jóns Sigmundarsonar, amma Guðbrands biskups,

heíði fengið þær Gottskálki biskupi fyrir það, að hún

hefði evtt miklu fé fyrir stólnum; annað var um Jón Sig-

t

mundarson, að hann hefði að ófyrirsynju drepið Asgrim
bróður sinn í kirkjugarðinum í Viðidalstungu og drekkt
tveim börnum sínum, öðru í soðkatli, en hinu í Gljúfurá.
Guðbrandur biskup sagði þegar, að bréfin væru fölsk og
uppspunnin sér til ófrægðar, en hann fékk þó engu
fram-gengt fyrir ofríki Jóns lögmanns, og stefndi þá hver
öðr-um fyrir konunginn og rikisráðið. Sigldi þá Jón
lögmað-ur og tókst um leið á hendur að bera fram fyrir
ríkis-ráðið ýms opinber mál, er snertu landsstjórnina, og fékk
hann alþingi tii þess að samþykkja, að hver skattbóndi
skyldi leggja fimm álnir til farar þessarar. Af hendi
Guðbrands biskups fóru þeir utan Arngrímur Jónsson og

r

Guðmundur Einarsson frá Utskálum, sem lika var
ná-frændi biskups; þeir Arngrímur fóru til Hamborgar og
svo um Holtsetaland og gegn um Danmörku til Hafnar;
kvnntist Arngrimur á þeirri ferð mörgum tignum og
lærð-um mönnum, t. d. Filip Nicolai, Dedekennus, Chytræus,
o. m. fl. Jón lögmaður bar mikinn róg fyrir konunginn
um biskupa og klerka, og reyndi Arngrímur að bera það
á móti, er hann gat, en þá vildi svo illa til, að Jóhann

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0235.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free