- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / I. /
222

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[222

Bucholt, sem áður hafði verið hér höfuðsmaður, mikill
vinur Jóns lögmanns, en óvinur Guðbrands biskups, var
kvaddur til vitnis af stjórnarráðinu, og átti hann að bera
um þessi mál og skera úr þrætunum; Bucholt var i öllu
samdóma Jóni lögmanni og ófrægði Guðbrand biskup og
kierka hans mjög fyrir stjórninni. Arngrímur fékk þvi
engu áorkað. Gaf konungur þá út tvö ávítunarbréf til
bisk-upanna, en skipaði höfuðsmanni Hinrik Krag að láta 24
manna dóm dæma málið á alþingi. Um sumarið komu
þeir til þings, Guðbrandur biskup og Jón lögmaður, en
Arngrimur kom eigi til landsins fyrr en eptir þing.
Guð-branclur vann sigur á þinginu, að þvi leyti að
»morð-bréfin« voru dæmd upplogin falsbréf, ónýt og að engu
hafandi, og voru klippt í sundur og fengin biskupi, svo
að þau yrðu ekki Jóni Sigmundarsyni né afkomendum
hans til neinnar hneisu; en svo var mikið riki Jóns
lög-manns, að ekki gat Guðbrandur haft hendur i hári þeim,
er bréfin höf ðu gert, og eigi náðu þeir Arngrímur heldur
jörðunum Hóli og Bessastöðum; Guðbrandur biskup varð
meðfram að vægja sökum þess, að hann hafði í
kæru-skjali sínu til stjórnarinnar verið mjög harðorður um Jón
lögmann og Jón Magnússon á Svalbarði föður hans, en
gat ekki sannað; hafði hann meðal annars borið Jóni
Magnússyni á brýn galdra og fjölkynngi.1

Árið 1595 tóku þeir Guðbrandur og Arngrímur
apt-ur upp málið um Hól og Bessastaði, en náðu eigi
jörð-unum að heldur, mest vegna stóryrða biskups um einn
af mótstöðumönnum sínum, og fengu þeir aldrei
iarðirn-ar. Þegar Guðbrandur biskup hafði fengið falsbréfin i
hendur, ritaði hann og lét prenta bæklinga um þau, og
spunnust út úr því ný málaferli og æsingar; mest kvað

í bréíi Guðbrands biskups til ríkisráðsins er svo koraizt að
orði: »1 annan máta kunngjöri eg yður, bvernig Jóns lögmanns
faðir befir meðkennt upp á sig allra banda galdra og befir þá
brúkað í langa tíð, og það, að bann baíi þar með mörgum manni
skaða gjört». Hndrs. J. Sig. nr. 523. 4to.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:09 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/1/0236.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free