Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
[225
sagnfræði, og opnaði fjársjóðu fornaldarinnar, sem
islenzk-ar bókmenntir siðan þvi nær eingöngu hafa lifað á.
ís-lendingar kunnu ekki að meta þetta, enda segir
máltæk-ið, að fáir séu spámenn í sínu föðurlandi. Á seinni
ár-um Arngrims var þó hugsunarhátturinn farinn að
breyt-ast; þá voru komnir fram margir ungir menntamenn
is-lenzkir, sem unnu islenzkum fróðieik og virtu Arngrím
fyrir það, sem hann hafði gert.
Þegar Guðbrandur biskup sýktist af hálfvisnun 1624
og lagðistikör, varð Arngrímur »officiaiis« og tók við allri
stjórn kirkjunnar og biskupsdæmisins; löngu áður (1596)
hafði konungur leyft Guðbrandi biskupi að hafa Arngrím
sér til aðstoðar við embættið, en 2. júii 1624 gaf Holger
Rosenkrantz út bréf á Bessastöðum, um, að Arngrimur
Jónsson skyldi veita biskupsembættinu forstöðu; átti
Arn-grímur að hafa umsjón með kirkjum og prestum og
visi-tera kirkjurnar; hann átti einnig að hafa yfirumsjón yfir
skólanum; Arngrimi var og boðið i viðurvist
ráðsmanns-ins, skólameistara og dómkirkjuprestsins, að safna saman
öllum bréfum og skjölum dómkirkjunnar og stólsins og
leggja þau i góða geymslu, unz »guð gerði enda á
bisk-upsins sjúkdómi eptir hans þægilegum viija, þó að
bisk-upsins myndugleika og embætti i allan máta óforkreinktu,
svo lengi sem liann viidi þvi sjálfur forstöðu veita«. Árið
1626 fékk Arngrímur konungsbréf um að vigja presta og
vigði hann aiis 6 presta, meðan hann þjónaði embættinu;
fyrstu kararár Guðbrands biskups, vigði Oddur biskup
Einarsson i Skálholti 3 presta að norðan. Fyrir ómak
sitt fékk Arngrimur Jónsson 50 jóachimsdali að launum
og afgjald af 7 jörðum Hólakirkju. Meðan Arngrimur gegndi
biskupsembættinu, þjónaði Illugi Ingjaldsson fyrir hann á
Melstað; en þegar Arngrimur aptur tók við brauðinu,
varð Illugi að hverfa frá og giptist um það leyti, en var
embættisiaus um tíma; lét Arngrímur sér mjög annt um,
að útvega Illuga gott brauð og gekk það treglega í fyrstu.1
*) Epistolæ 0. Wormii. Havniæ 1751, bls. 302-303, 318.
13
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>