- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / II. /
236

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

236

allt, sem hann hefir skrifað, og svara öllum útásetningum og
mótbárum, sem menn kunna að koma með.

Um sama leyti rituðu tveir aðrir menn, Mattías
Joch-umsson og Jón Olafsson frá Grunnavik, ritgjörðir um ástand
og framfarir Islands, og munum vjei’ geta þeirra hér, þó þær
séu mjög ólikar. Ritsins eptir Mattías Jochumsson getum
vér nánar, af því það beinlínis snertir landið og lýsir
þjóð-inni og ástæðum hennar allítarlega. Hinn síðari rithöfundur
fæst ekki við þau efni, sem vanalega er talað um i slíkum
ritum, hann skoðar framfarauppástungurnar frá allt öðru
sjónarmiði og er andvígur skoðunum þeim, sem flestir aðrir
rithöfundar í þá daga berjast fyrir, en einmitt þessvegna er
nauðsynlegt að kvnna sér einnig dálítið rit Jóns Ólafssonar
frá Grunnavík.

r r

Arið 1729 var Mattías Jochumsson Vagél sendur til
Is-lands, til þess að gá að brennisteini; 28. júní 1724 veitti
konungur Fr. Holtzmann og Fr. Sechmann og erfingjum
þeirra einkaleyfi til þess að safna brennisteini á Islandi1;
ekkja Holtzmanns sendi Mattías þennan til íslands, til þess
að grennslast eptir, hvort ekki væri hægt að fá ódýrari
brennistein en hingað til; þess utan segir Mattías sjálfur, að
rentukammerið og konungur hafi boðið sér að gá að því á
íslandi, er merkilegt væri, einkum hvort þar væri hægt að
byggja kaupstaði og stofna til hvalaveiða. Mattías
Jochums-son segist í 3 ár hafa ferðazt á Islandi og komið i flestar
sýslur, þrisvar farið um Suður- og Norðurland og einu sinni
vestur, en aldrei austur; hann segist hafa komizt í margar
þrautir, farið yfir brennandi fjöll og hraun, stórár, snæfjöll
og heiðar, opt búió 4 eða 5 daga í tjaldi og þolað frost,
kulda og hungur, kafald og storma, segist hann varla halda,
að nokkur íslendingur, hvað þá heldur útlendingur, hafi farið
svo víða um landið; hann telur sig því manna færastan til
þess, að dæma um ástand landsins2.

’) Lögþingisbók 1725 nr. 17.

J) Jón Marteinsson talar illa um Mattías Jochumsson og lýsir
honum sem örgum ílakkara, sem hafi farið betlandi um landið og setzt

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/2/0248.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free