Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
79
efnaðri bændur þar við tjöld, en fátæklingar skýlislausir á ber-
svæði. Frá Reykjarfirði fór Mohr sjóveg suður í Kaldbaksvik
og Bjarnarfjörð og skoðaði þar laugar og fór svo aptur til
Reykjarfjarðar; þar hætti verzlunin 10. september og verzl-
unarhúsunum var lokað. f*á gerði norðangarð með snjó og
frostum um hálfan mánuð svo kaupskipinu gaf ei út fyrr en
23. september og með þvi sigldi Mohr aptur til Skagastrandar;
siðan brá hann sér snöggva ferð til Skagafjarðar til þess að
skoða Tindastól, því mikið hafði verið af því látið hve marga
dýrindissteina þar væri að finna, en Mohr fann þar ekkert
merkilegt sem vonlegt var. Frá Skagaströnd fór Mohr alfar-
inn 5. október norður á Akureyri og var þar um veturinn.
I Eyjafirði kom Mohr á ýmsa bæi til þess að kynna sér lifnaðar-
t
hætti manna: hann hrósar Islendingum mjög fyrir hvað þeir
séu hagir á tré og málma; í Eyjafirði voru þá margir góðir
smiðir á silfur, gull og kopar og smíðuðu drifið látún á söðla
og söðulreiða með margskonar myndum, en kvennfólk sat
við útsauma og saumaði ábreiður, söðulklæði og sessur;
all-staðar segist Mohr hafa séð útsaumaðar sessur og áklæði
bæði í heimahúsum og kirkjum. Þessu er eflaust rétt lýst,
þvi heimilisiðnaður var fyrrum á háu stígi á Islandi, en hefir
mjög farið aptur, nú kaupa menn ódýrt, útlent rusl,
smekk-laust og ónýtt. Mohr getur um bónda í Lögmannshlíð, sem
stakk á vatnssjúkum manni, tappaði af honum og tókst það
vel. í kirkjunni í Lögmannshlið var Ólafslíkneski úr tré í
fullri mannsstærð; á Espihóli sá Mohr fornmannshaug, sem
var farinn að blása upp, þar komu út mannabein og segist
hann hafa búizt við að sjá risabein, en þau voru eigi
stór-vaxnari en bein manna, er þá lifðu.
Um vorið 1781 var ís fyrir Norðurlandi. Mohr fór þá í
mailok út í Hrísey og á land á Karlsá, þar sá hann í fyrsta
sinn beinabruðning og lýsir tilbúningi hans; svo fór hann til
Ólafsfjarðar, Héðinsfjarðar og Siglufjarðar sjóveg og var
all-staðar kyrr sjór undir björgunum af þvi hafís lá fyrir utan.
r
A Siglufirði skoðaði Mohr grafít eða blýantstein þann, er
Olavius hafði fundið, en þar var ekki meira að fá af efni
þessu en í hálfan vetling, svo litið útlit var fyrir að not yrðu
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>