- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
78

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

78

legt er að bera saman ferðakostnað þá við það sem nú er.
Mohr segir að ódýrast sé fyrir ferðamenn að kaupa sjálfir
hestana, en ekki getur hann þó um hvað þeir kostuðu þá
þar nvrðra, en vanalegt hestverð mun í þá daga hafa verið
1—2 rd. Ef menn leigja hesta og fá sér fylgdarmann segir
Mohr að hestlánið kosti 12 skildinga á dag, en
fylgdarmanns-kaupið sé 24 sk., en þá ábyrgðist fvlgdarmaðurinn allt og
lagði til allan reiðskap er þurfti.1 Frá Skagaströnd fór Mohr
fyrst að Höskuldsstöðum, þar sá hann blágrýtissúlu á
hlað-inu, sem brúkuð var fyrir hestastein og er svo enn víða á
íslandi, en með þvi blágrýti var þar ekki nærri. var það sögn
manna, að tröllskessa hefði kastað steininum þangað ofan úr
fjöllum. Mohr fór svo vfir Blöndu og lýsir almennu eðli
jökulánna á Islandi; ekki heldur hann að hinn hviti litur
ánna komi frá jöklunum heldur úr leirlögum, sem árnar renna

r

gegnum. A Hjaltabakka var stofa með of’ni, en í þá daga
voru ofnar fágætir gripir á íslandi. Svo hélt Mohr vanalega leið
um Miðfjörð og Hrútafjörð og á Kjörseyri sá hann túngarð
kringum allt túnið, sem hann annars hvergi segist hafa séð á
Is-landi; en leyfar af gömlum föllnum görðum segir hann sjáist víða.
Yfirleitt finnst honum búskaparlagið mjög bágborið, kargaþýfi
í túnunum. illa borið á og afleitlega farið með áburðinn.
Kirkjurnar, sem urðu á leið hans, voru flestar mjög lélegar,
allar úr torfi og sumstaðar engir bekkir, en söfnuðurinn varð
að sitja á kistum. Ur Hrútafirði hélt Mohr sem leið liggur
norður i Steingrimsfjörð og skoðaði á þeirri leið leirtegundir
i Mókollsdal, siðan fór hann vfir Trékyllisheiði i Beykjarfjörð;
þar var þá nokkurskonar útibú frá Skagaströnd,
verzlunar-húsin voru lokuð nema um kauptíðina, en þá lágu hinir

Fylgdarmaður Mohr’s hét þorkell Guðmundsson frá Vindliæli,
»sem siglt hafði og verið um tima á Grænlandi*. (Annáll síra
Magn-úsar Pjeturssonar á Höskuldsstöðum 1780. Hdrs. Bókmf. í Kmhöfn nr.
149-4°).

Mohr fékk 300 rd. árlega til ferðanna, 200 rd. frá stjórninni og 100
rd. frá postulínsverksmiðjunni, en sjálfur átti hann að kosta ferðir og
flutning. í ritlaun fyrir náttúrusöguna fekk Mohr 200 rd. og 250 rd.
voru veittir til prentunar. (Lovs. f. Island V. bls. 138—139).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0086.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free