- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
93

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

93

erlendis og eins ýms önnur frönsk, hollenzk og ensk kort yfir
norðurhöfin (t. d, Jan de Vos, G. von Keulen, d’ Anville.
Kitchin. Crome, Bode o. fl.). Þö uppdrættir þessir séu miklu
hetri en hinir eldri, er þeim þó í mörgu ábótavant, og bera
keim hinna fyrri tíma. Arið 1752 gaf Horrebow út uppdrátt
af íslandi, sem er byggður á korti Knopf’s og ennfremur lét
Bantzau greifi g.jöra uppdrátt íslands 1761 og var hann
prent-aður i Nurnberg;1 1772 gjörðu þeir Jón Eiríksson og Schöning
uppdrátt íslands, er fylgdi ferðabók Eggerts og Bjarna, og
annar uppdráttur með nokkrum breytingum fylgdi ferðabók
Olaviusar 1780, og höfðu þeir Jón Eiríksson og Ólafur
Ólafs-son búið hann undir prentun. Eptir þeim tveim
uppdrátt-um, sem seinast voru nefndir, voru kort þau gjörð, sem fylgdu
ýmsum útgáfum af ferðabók Uno von Troil og ýmsir aðrir
stórir og smáir uppdrætlir. Kort Knopf’s, seni allir þessir
uppdrættir eru byggðir á, er að mörgu mjög ónákvæmt bæði
að því er upplendi snertir og strendur; staðaákvarðanir voru
fáar og ónákvæmar og strendur landsins mjög settar af
handa-hófi, kort þessi voru því sjómönnum að litlum notum og opt
villandi; í þoku og dimmviðrum var það hin mesta hætta
fyrir sjófarendur að nálgast landið þar eð ekki var hægt að
reiða sig á, að strendur þess væri rétt settar á uppdráttunum.

A 18. öld voru Frakkar þegar farnir að hafa töluverðan
skipastól í norðurhöfum til fiskiveiða og 1767 sendi frakkneska
stjórnin herskip til Islands til þess að gæta fiskimanna og
veita þeim hjálp ef þyrfti. Foringi herskips þessa hét Kerguelen
de Tremarec og hefir hann ritað bók2 um sjóferðir sínar í

eptirmyndir þeirra fylgja ritinu. Rannsóknir á uppdráttum, er Island
snerta, verða að bíða seinni tima. Allmarga uppdrætti telur C. U. D.
Eggers: Physikalische und statistische Beschreibung von Island.
Kopen-hagen 1786, bls. 184—212.

Insulæ Islandiæ delineatio. Edita studio et impensis Homaniorum
Heredum. Norimbergæ 1761.

2) Kerguelen de Tremarec: Relation d’un voyage dans la mer du
Nord. Paris 1771-4°. Þýzk útlegging: Des Herrn Kerguelen de Tremarec
Beschreibung seiner Reise nach der Nordsee. Leipzig 1772, 8vo. Frönsku
útgáfuna hefi eg ekki séð. i henni kvað vera ýmsir uppdrættir og
stranda-myndir, sem ekki eru í hinni þýzku.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0101.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free