Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
119
muni einhverntíma falla yfir þá alla. Vottur sést til þess að
stór brestur er kominn í fjaliið og liggur hann upp á það og
niður báðu megin við bæina og opnast hann æ meir og meir;
hæzt uppi á fjallinu var eitt sinn ketti kastað í sprunguna
»hver eð kom aptur upp úr eirne holu í búre á einum
þess-ara bæja*.1
Auk landsuppdrátta þeirra, sem eru í riti Sæmundar um
Skaptáreldana, hefir hann teiknað ýms önnur kort og eru það
flest eptirmyndir éptir kortum annara manna; vér höfum fyrr
(II, bls. 287) getið um eptirmynd af Vestfjarðauppdrætti Hjalta
prests Þorsteinssonar. Þá hefir Sæmundur gjört ýmsa upp-
t
drætti af Vesturströnd Grænlands og Suðurströna Islands,2 og
margar myndir af ýmsum fjöllum og stöðum á Islandi og er
það flest ómerkilegt. Sæmundur hefir meðal annars gjört
t
margar mvndir af eldgjósandi fjöllum á Islandi upp úr sér og
eru þær flestar heilaspuni og draumórar, ber þar mest á
eld-glæringum og öskufalli og sýna myndirnar megna
vanþekk-ingu höfundarins á landfræði Islands og er örnefnunum ruglað
saman í graut.3 Sumstaðar er texti með myndunum, en
vanalega er litið á honum að græða, meðal annars er þar
ýmislegt um árferði og undarlega fyrirburði, 1777 segir
Sæ-mundur að rignt hafi ormum nyrðra og hið sama segist hann
Sæmundi er ennfremur eignuð lýsing Vestmanneyja, sem víða er
til í handritum, en hún er miklu eldri og í Lhs. nr. 123-4° er hún
eignuð síra Gissuri Péturssyni. hann fékk Ofanleiti á Vestmanneyjum
1689 og dó 1713 (Lítil tilvísan um Vestmanna Eya háttalag og bygging).
Handrit af lysingu þessari með hendi Sæmundar. með korti og myndum
eptir hann. er í Ny kgl. Samling nr. 1677-4° og í Ny kgl. Saml. nr. 1088 b
fol. er og »Lítil afritzning yfir Vestmanneyjar eptir Sæmund Holm 1776«.
Sbr. hdrs. M. Stephensens nr. 55, 187—200. blað. í riti þessu er fyrst
lvsing Heimaeyjar. svo um vatnsuppsprettur og brunna, um hella og
gjögur, um búnaðarsiðu og sveitarlag, um úteyjar og veiðiskap fugla og
eggja, um ^úlnasker. um grös og jarðargæði, um sjóferðir og siglingar,
um seli. um undarleg sóttarferli, um akuryrkju og um örnefni. 1
rit-gjörð þessari er ýmislegur fróðleikur um staðalýsingu og atvinnuvegi,
einkum um fuglaveiði og í henni myndir og uppdráttur af Heimaey.
s) Ny kgl. Saml. nr. 1088 b fol.
s) S. M. Holm: Tegninger af adskillige Mærkværdigheder paa Island
1777—78. Ny kgl. Samling nr. 1093 fol. og 1094 fol.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>