Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
128
reit og margt fleira um eldgos i Skaptafellssýslum. Jón
Sig-urðsson sýslumaður (f 1770), síra Jón Guómundsson á
Sól-heimum (f 1770) og Gisli Bjarnason á Melum (f 1771)
skrif-uðu um Kötluhlaupið 1755, um Heklugosið 1766 rituðu þeir
Hannes biskup Finnsson og Einar Jónsson skólameistari (f
1781), um jarðskjálftana 1784 ritaði Hannes biskup ágætlega1
og síra Sveinn Halldórsson (f 1805) um bæjahrun i Flóa.2
Ennþá hafði engum dottið í hug að rannsaka öræfi
Is-lands og óbvggðir, það var rétt af hendingu er byggðarmenn
fengu vitneskju um einhvern hluta öræfanna, sem flestum
stóð mikill stuggur af og þó einhver fjárleitamaður rólaði um
heiðar, var það ekki fært í letur og hafði enga þýðingu til
aukningar á þekkingu í landfræði Islands. Um lok aldarinnar
satnaði Sveinn Pálsson allmiklum fróðleik um jökla og öræfi
og færði það í letur, sem hann hafði hevrt kunnuga
alþ);ðu-menn segja og mun rita hans siðar getið. Þess hefir áður
verið getið (II. bls. 105—106) að menn stundum á 17. öld
fóru um Odáðahraun til þess að stvtta sér leið frá
Múla-sýslum til Suðurlands, Oddur Einarsson og Bjarni Oddsson á
Bustarfelli fóru um norðurhluta hraunsins, en munnmæli segja
r
að Arni Oddsson hafi 1618 farið um suðurhluta þessara
ör-æfa. Þessir vegir voru nú fyrir löngu týndir og enginn þekkti
Odáðahraun eða fór þar um, almenningur hélt að þar væri
fullt af útilegumönnum og hin mesta mannhætta að nálgast
bústaði þeirra. Stefán amtmaður I’órarinsson bauð þá fyrir
tilstilli stjórnarinnar verðlaun fyrir að finna veg úr
Múlasýsl-um til Suðurlands og urðu tveir menn til að leggja á öræfin
til þess að kanna þau og reyna að finna færan veg. Bjarni
nokkur frá Draflastöðum i Fnjóskadal fór þá um norðurhluta
Odáðahrauns frá Ferjufjalii suður í Lindabotna, fyrir sunnan
Herðubreið, vestur að Dyngjufjöllum og vestur með þeim að
norðanverðu, svo um helluhraunin niður i Suðurárbotna,
þaðan á Skafamýrar niður með Sandá, yfir Skjálfandafljót
af riti þessu er prentað í Riti um jarðelda er M. Loptsson gaf út. Rvík
1880-8° bls. 41—77.
r) Rit lærdómslistafélagsins XIV, 1786. bls. 146—154.
’) porv. Tlioroddsen: Jarðskjálftar á Suðurlandi. Kmhöfn 1899.
bls. 195—197.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>