Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
129
(líklega á Hrafnabjargavaði) og svo suður á Sand. Bjarni
fann vörður á þessari leið, en hraunsprungur og gjár voru
honum mjög til farartálma.1 Annar maður fór syðri
leiðina 1794, langa og örðuga ferð, hann hét Pétur
Brynjólfs-son og var sonur Brynjólfs Péturssonar læknis (1747—1829).2
Pétur var mesti atgjörvismaður og hafði menntað sig sjálfur
i stjörnufræði, landafræði og náttúrufræði, hafði lært þýzku
og dönsku og var vel að sér í fornfræði og lögum. þó vár
hann ekki skólagenginn, en Iagði fvrir sig gull og silfursmiði,
hann var mjög hagur og fann upp ýmislegt nýtt sér og
öðr-um til verkaléttis við smiðarnar.3 Pétur fór frá Brú upp
Laugarvalladal, síðan úr Þorláksmýrum vfir Kverká og Kreppu;
fór hann Kreppu. sem hann kallaði Dyngjufjallaá, í einu lagi,
og var hún nærri ófær; hann fór fvrir sunnan Hvannalindir,
sem menn þá ekki þekktu, yfir Kverkfjallarana, þvínæst yfir
Jökulsá i kvíslum uppi við jökul. síðan vestur með jökli fram
hjá Kistufelli (sem hann kallar Jökulfell) að Skjálfandafljóti og
niður í Kiðagil. Sveinn Pálsson segir um hann: »eg á
þess-utn vandaða og efnilega unga manni að þakka alla þekkingu
mina um norðurrönd Klofajökuls og um veginn norðan
jök-uls, hann var förunautur minn á ferðinni til Snæfells og næstu
héraða siðast liðið sumar«.4 Pétur Brynjólfsson dó ungur,
drukknaði 6. júli 1798 á Berufirði með 3 mönnum öðrum,
ætluðu þeir að sigla á báti af Berufjarðarströnd yfir í
kaup-staðinn, en menn halda að fellibylur hafi komið í segl þeirra
og hvolft bátnum.5 Þvi miður vitum vér ekkert meir um
ferð Péturs Brvnjólfssonar, hún var rösklega og duglega af
hendi leyst og jók mjög þekkingu manna um öræfin norðan við
Vatnajökul sem sjá má af ritum Sveins Pálssonar; það er þvi
vert að mitnningu Péturs Brynjólfssonar sé haldið á lopti.
porv. Thoroddsen; Ódáðahraun. Andvari XI bls. 22—23.
2) Tímarit Bókmenntafélagsins XI. bls. 217—218.
3) Minnisverð tíðindi II, bls. 120—121, 139—146.
4) Sveinn Pálsson: Beskrivelser af islandske Vulkaner og Bræer
II (Norsk Turistforenings Aarbog 1882, bls. 15. Særtryk).
s) Pétur Brynjólfsson var giptur systur síra Guttorms Pálssonar
prófasts, þeirra son Páll varð siðar prestur í Danmörku á Rómey hjá
Jótlandi. Sbr. Æíiminning Guttorms Pálssonar. Akureyri 1864, bls. 19.
9
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>