- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
149

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

149

lagi væri, til þess hefói þurft marga menn um langan tíma
og stórfé. Stjórn félagsins hefir haft mjög óglögga hugmynd
um landshagi á Islandi, víöáttu landsins og hin örðugu og
kostnaðarsömu ferðalög, sem eigi er hægt að framkvæma
nema 2—3 mánuði af árinu. Sveinn fann líka til þessa siðar;
1 bréfi til Stefáns Thorarensens amtmanns kvartar hann t. d.
yfir því, að félagið ætlist til að hann á 3 árum eða réttara
6—8 mánuðum rannsaki allt land og hann sé fallin í ónáð
af því hann geti ekki þotið yfir allt á svo stuttum tíma og
finni ekki nógu margt nýtt i hverri ferð. Þetta var líka
ónær-gætni af félaginu; þeir Eggert og Bjarni gátu eðlilega fundið
margt nýtt á Islandi, þvi þá var allt órannsakað, en það
var-öróugra fyrir Svein, og auk þess er dýralif á Islandi svo líkt
þvi sem er i nálægum löndum, að þvi nær ekkert er
sér-stakt eða einkennilegt fyrir landið.

Erindisbréf Sveins Pálssonar1 er svo langt, að það er
ekk-ert viðlit að prenta það hér, vér setjum aðeins aðalefnið.
Samkvæmt lögum félagsins hefir Sveinn Pálsson tekið próf 1
náttúrufræði og sýnt að hann er hæfur til þess að ferðast
fyrir félagið, »á hann að finna, safna og lýsa náttúrugripum
á íslandi frá öllutn brem náttúrurikjum og athuga notkun
hlutanna í atvinnuvegum tnanna«. Þetta aðalefni er svo
nánar útskýrt. Hann á að athuga það af dýraríkinu setn
merkilegt er, einkum það sem þýðingu heftr fvrir fræðikerfið,
og grennslast eptir hvort tegundirnar samsvöruðu lýsingu
eldri höfunda; hann á að athuga breytingar dýranna eptir
aldri og kyni, árstímum og æxlunartíma, hann á að
rann-saka æxlun dýra og fjölgun, meðgöngutima, tölu eggja og
út-lit o. s. frv. Sérstaklega á hann að athuga útselinn og rita
upp nöfn þau er íbúarnir gefa dýrunum á ýmsum stöðum
eptir aldri og kyni. Þá á hann ennfremur að rannsaka
ferðir fugla og fiskigöngur og athuga æti fiskanna. Þá á
hann sérstaklega að athuga hin smærri sjóardýr og leita að
þeim með botnvörpum á dýpri og grynnri fiskimiðum og

Erindisbréíið er dagsett 16. júni 1791. Hdrs. Bókmf. Kmli. nr.

7 fol.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0157.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free