Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
155
skeljar við Sogið og safnaði plöntum, þá fór hann upp að
Næfurholti og skoðaði Hekluhraun en komst ekki upp á Heklu
sakir þoku, svo niður í Landeyjar, utn Fljótshlíð og upp i
Þórsmörk, skoðaði þar skriðjökla, rannsakaði jökulöldur,
ís-hóla á jöklinum og lagskiptingu jökulissins og lýsir þessu
öllu mjög vel.
Hinn 16. ágúst gekk Sveinn upp á Eyjafjallajökul. Fóru
þeir frá Hlíðarenda kl. l1/^ e. h. yfir að Stórumörk og riðu
upp undir fjöllin að Ijótu gljúfri, sem heitir Illagil, bundu þar
hestana vestan við gljúfrið og gengu svo yfir þaó; var þá þoka
á jöklinum en hana dreif frá siðar. Jökulröndin var mjög
sprungin og áttu þeir mjög erfitt með að komast yfir ótal
hyldýpis isgjár, þó tókst þeim aó komast upp á Guðnastein kl.
7 um kvöldið. Utsjónin var einkennileg, þvi dalirnir voru allir
fullir af þoku, en fjallatindarnir einsog smáeyjar upp úr. þó
var landið þokulaust lengra burtu, svo þeir sáu Langjökul og
Hofsjökul, Skjaldbreið. Torfajökul, Fuglasker og
Vestmann-eyjar. Sveinn mældi hæð jökulsins og fannst hún vera 5130
fet og var það ekki mjög fjarri sanni, því eptir
strandmæl-ingunum er Eyjafjallajökull 5^32 fet. Hitinn var á
Hliðar-enda 16° R., en á jöklultindinum var x/2° frost. Efst á
Eyjafjaliajökli eru 3 eða 4 hnúðar og er Guðnasteinn einn
þeirra og hinn eini jökullausi; hnúskar þessir standa í hring
og mynda bikar með opi til norðurs og hafa tveir
skrið-jöklar þar upptök sín. Sveinn Pálsson heldur eðlilega að
lægðin sé gigur, en ekki ætiar hann að þaðan hafi runnið
hraun, heldur muni þaðan hafa komið ösku- og vatnsgos
einsog úr Kötlu. Bergtegundin í Guðnasteini er dökkgrátt,
lagskipt móberg og hallast lögin inn að bikarnum; undir
mó-berginu er rauðleitt, gjallkennt hraun og hér og hvar
smá-molar af þéttu blágrýti. sem líklega hefir átt heima i
móberg-inu. Þeir Sveinn sneru aptur kl. 73/4 um kvöldið og komu
maður, sem ekki var af »familiunni«. Svo bætir Sveinn Pálsson við:
»Enhver af disse faar 10 rd. af Justitskassen for at sidde i denne
artige Ret paa en Times Tid< (Journal II. bls. 134). Sýnir þetta meðal
annars hve miklu þeir Stephensens feðgar þá réðu á íslandi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>