Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
169
segist hann hafa orðið að láta sædýrarannsóknirnar sitja á
hakanum, enda hafi hann sjaldan fengið svar er hann spurði
félagið einhvers þar að lútandi eða vildi fá d}’r ákveðin, hann
kveðst þessvegna hafa orðið að snúa sér helzt að landfræði,
jarðfræói og grasafræði. Sveinn býður félaginu framvegis
borgunarlaust að gjöra athuganir fvrir það, en segist
alvar-lega vilja færast undan ákærum fyrir að hann hafi notað
styrkinn illa eða óráðvandlega. Félagið ritaði Sveini næsta
sumar og mun þá hafa látið hann njóta sannmælis og
viðurkennt starfa hans. Að félagið ekki lét halda áfram
rann-sóknunum hefir líklega meðfram stafað af féleysi. þvi í sjálfu
sér var það eðliiegt þó fátækt félag ætti örðugt með að kosta
rannsóknir i fjarlægu landi úr því stjórnin ekkert lagði til, en
hún var þá orðin fráhverf sliku, og sérstaklega höfðu
Islend-ingar misst hauk úr horni er Jón Eiriksson var látinn. Arið
1795 sendi Sveinn félaginu hið ágæt^ rit sitt um jökla á
Is-landi, en þaö treysti sér ekki til að gefa það út, en sendi
ritgjörðina til »staðlýsingafélagsins« norska og þar lá hún
í salti og kom aldrei út. í bréfi 17. ágúst 1796 itrekar
Sveinn loforð sitt til félagsins um að gjöra
veðurathug-anir fyrir það og almennar náttúruathuganir þó hann eigi
örðugt með það sakir frátafa, þvi nú verði hann að hafa
ofan af fyrir sér með þvi að búa sem bóndi; hann biður
fé-lagið um hitamæla og önnur verkfæri, er hann kveðst sjálfur
skuli borga. Sveinn efndi þessi loforð sín og sendi félaginu
skýrslur fram undir aldamót.
Ur þvi svona var komið þurfti Sveinn Pálsson að útvega
sér eitthvað til viðurlífis. Arið 1794 hafði stiptamtmaður kvatt
Svein til að sækja um skólakennaraembætti við
Reykjavíkur-skóla, en hann fékk það ekki og aptur sótti hann 1797 og fór
það á sömu leið; það hafði þó komið til tals að þriðja
kenn-arann skyldi setja við skólann og átti hann að kenna
náttúru-fræði og hagfræði, en ekkert varð úr því. Til þess að hafa
ofan af fyrir sér greip Sveinn til þess heiðarlega starfa, er
hann snemma hafði vanist og var vel laginn fyrir, hann fór
að búa, en átti örðugt mjög í fvrstu af því hann var
blá-fátækur. Sveinn Pálsson var i vinfengi miklu við Vigfús
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>