- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
199

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

199

t

gang, töflur yfir sólarinnar sýnilega gang á Islandi og leiðar-

visir til að þekkja stjörnur, ennfremur tölvísi, einfalda land-

t

mælingu og um mæling Islands, þessutan ýmsar greinir í
blööum.1 Jónas Hallgrimsson þýddi Ursins stjörnufræði með
mikilli snild2 og Jón Thorlacius prestur (1816—1872) gaf út

r

stundatal eptir stjörnum og tungli.3 Ahugi á stjörnufræði var
töluverður hjá mörgum fram yfir miðja öldina og mun það
mest hafa verið Birni Gunnlaugssyni að þakka. Jón
Bjarna-son, ólærður bóndi í Þórormstungu i Vatnsdal (1791—1861)
menntaði sig sjálfan svo i tölvisi og stjörnufræði að hann
samdi almanök og lék sér að að reikna sólar og tunglmyrkva,
halastjörnubrautir og annað þvilikt, sem vanaléga er talið
ein-göngu meðfæri læróra stjörnufræðinga, margir útreikningar
hans voru svo skarpvitrir, að visindamenn urðu alveg hissa
hvernig hann mátti slíku til leiðar koma. Jón
Bjarna-son hafði og áhuga á öðrum náttúruvísundum og hefir ritað
og þýtt margt um dýrafræði, steinafræði o. fl. en allt er það
óprentað.4 Magnús Grímsson prestur þýddi Eðlisfræði eptir
Fischer5 og bókmenntafélagið lét þýða enskar bækur um
efna-fræði, eðlisfræði og eðlislýsing jarðarinnar.6 Um rím var nú

x) Njóla eða hugmynd um alheimsáformið. 3 útgáfur. Viðey 1842
og Reykjavík 1853 og 1884. Nokkrar einfaldar reglur til að útreikna
tunglsins gang (á íslenzku og latínu) Viðey 1828-4°. Töflur yfir
sólar-innar sýnilega gang á íslandi. Viðey 1836-4°. Leiðarvísir til að þekkja
stjörnur I - II. Reykjavík 1845—1846-8vo. Tölvísi. Reykjavík 1865-8vo.
Einföld landmæhng. Kmhöfn 1868-8vo. De mensura Islandiæ (á dönsku
og latínu). Viðey 1834. 8C.

2) 6r. F. Ursin: Stjörnufræðí létt og handa alþýðu. Jónas
Hall-grímsson íslenzkaði. Viðey 1842-8vo.

3) Jón Einarsson Thorlacius: Stundatal eptir stjörnum og tungli.
Akureyri 1855 8vo.

4) Jón Bjarnason; Náttúrufræðisrit í 7 bindum 4° (hdrs. bókmf. í
Reykjavík nr. 72—78) og 4 bindi í 8vo (s. st. nr. 79—82). Ennfremur:
Um árstiðir 19. aldar, árferði 1800—1859 (hdrs. bókmf. Kmhöfn nr.
142-8vo). þjóðólfur 1861, XIV. bls. 26-27.

s) Eðlisfræði. Kmhöfn 1852-8vo (með 250 myndum).

’) Efnafræði eptir H. E. Roscoe. Rvík 1879. Eðlislýsing
jarðar-innar eptir A. Geikie. Rvík 1879. Eðlisfræði eptir Balfour Stewart.
Rvík 1880-8vo.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0207.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free