Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
203
eru geymdar í handritasafni bókmenntafélagsins og hafa enn
ekki verið notaðar til neins. Þó veðurathuganir þessar að
mörgu ekki fullnægi þeim kröfum, setn vísindin nú gjöra, þá
er enginn efi á þvi, að veðurbækur þessar geta með öðru
komið að talsverðum notum, þegar einhver tekst á hendur
að semja veðurfræði Islands, en það er ekkert áhlaupaverk
enn sem komið er og mundi taka mikinn tíma og fyrirhöfn.
Þvi næst munum vér stuttlega geta rannsóknarferða
Is-lendinga á árunum 1800—1880. Þær voru hvorki margar
né langar og miklu þýðingarminni en ferðir Islendinga á 18.
öld. Vér höfum fyrr getið þess, að Ogmundur Sigurðsson,
er seinna varð prestur á Tjörn á Vatnsnesi, stundaði nokkur
ár náttúrufræði í Kaupmannahöfn. Danskur maður Teilmann
t
að nafni, sem ferðaðist á Islandi 1820, hafði flutt heim með
sér dálítið af móbergstegund, sem menn héldu að mætti nota
sem nokkurskonar sement (terra puzzolana). Stjórnin vildi
láta grennslast eptir móbergi þessu og öðrum svipuðum
jarð-tegundum,1 og að ráði G. Forchhammers háskólakennara var
Ogmundur sendur til Islands sumarið 1833 og átti hann á
Snæfellsnesi og víðar aó safna móbergs og jarðtegundum og
um leið skoða mókolamyndanir í Skagafjarðardölum, hann
átti einnig að skvggnast eptir grösum. steinum og málmum.
Ogmundur leysti verk sitt vel af hendi og sendi til Hafnar
leirtegundir og steina en ekki fannst neitt t þvi, sem að
not-um mátti verða. Kolin úr Skagafjarðardölum voru reyndar
allgóð, en lögin of þunn og örðugt að komast aó þeim, svo
ekkert útlit var til, að það borgaði sig aó vinna þau.2
’) Lovsamling for Island XII bls. 265—266.
2) I kirkjubók á Tjörn á Vatnsnesi fann eg 1897 æfiágrip
Ög-mundar prests, er hann hafði sjálfur samið og set eg hér hin helztu
æfiatriði hans. Ögmundur Sigurðsson var fæddur annan dag jóla 1799
í Gaularási í Landeyjum, foreldrar hans voru sira Sigurður
Ögmunds-son og Kolfinna þorsteinsdóttir. fluttist hann með þeim að Heiði í
Skaptafellssýslu og dvaldi þar til 1821 er hann fór í Bessastaðaskóla
og útskrifaðist þaðan 1824; sama ár sigldi Ögmundur til háskólans tók
1. og 2. próf og stundaði svo lögvísi, en hætti við það aptur, er hann
fékk styrk til náttúrufræðisiðkana; segist Ögmundur helzt hafa fengið
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>