- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
212

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

212

Ólafsvík. Hinn 3. júli gengu þeir Briglit og Holland upp á
Snæfellsjökul.1 A bakaleiðinni fóru þeir félagar um Dali og
suður í ReykholtsdaL skoðuðu þar hveri og lýstu þeim
all-ítarlega. Hinn þriðja leiðangurinn fóru þeir frá Revkjavík
austur sveitir að Þingvöllum, Skálholti og Geysi, svo gengu
þeir upp á Heklu og fóru upp í Hrafntinnuhraun, siðan austur
undir Evjafjöll og sneru þar við, komu að Odda og á
Eyrar-bakka, héldu svo rakleiðis til Reykjavíkur og sigldu þaðan
aptur hinn 19. ágúst 1810.

Mackenzie kvartar undan því að sér hafi ekki orðið eins
mikið ágengt á Islandi einsog hann vildi af því hið ógurlega
tómlæti Islendinga, klaufalegur klyfjabúningur á hestum og
vondir vegir hafi mjög tafið fyrir. Mackenzie segir einsog
Hooker frá mörgu er einkennir ásigkomulag og aldarhátt á
þeim dögum, lýsir heldri mönnum íslenzkum og
hversdags-háttum þeirra o. s. frv. Mvndir eru margar í bókinni af
fjöllum, hverum, landslagi, búningi o. fl. og eru sumar þeirra
vel gjörðar og vfir höfuð að tala er þar margur fróðleikur
um fsland af ýmsu tagi, sem hér verður ekki talinn. I
ferða-bók Mackenzies2 eru prentaðar ýmsar ritgjörðir eptir Dr.
Hol-land, t. d. vfirlit yfir sögu Islands og bókmenntir, um hið
þáverandi ástand menntunar og bókmennta á Islandi, um
stjórnarfar, lögogtrúbrögð. Pá hefiraðalhöfundurinn sjálfur ritað
um búskap og verzlun og um steinafræði og .jarófræði og Mr.
Bright um dýr og jurtir. I viðaukum eru ritgjörðir um
sjúk-dóma á Islandi eptir Holland, registur yfir íslenzkar jurtir
eptir W. J. Hooker, listi vfir bergtegundir og steina, er
Mack-enzie safnaði, veðurathuganir og ýmislegt fleira. Bókinni
fylgja tveir landsuppdrættir. annar 11 íti 11 yfir land allt, hinn

’) Sbr. porv. Thoroddsen: Ferð um Snæfellsnes (Andvari XVII. 1891.
bls. 84—85).

*) George Stenart Mackenzie: Travels in the Island of Iceland
du-ring the summer of the year 1810. Edinburgh 1811-4° (XX +492 bls.).
þýzk útgáfa Weimar 1815. Langur útdráttur og ritdómur um ferðabók
þessa er i Dansk Litteratur-Tidende for 1812. nr. 10 bls. 145—159 og
nr. 11 bls. 161—176.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0220.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free