Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
255
á vetrum. Ohlsen gat þess, aó í fyrsta lagi væri hægt aó
byrja um maí-lok og eigi hægt að halda lengur áfram en til
þess um miðjan september eða í lengsta lagi til loka þess
/
mánaðar. »A þessum tíma«, segir Ohlsen, »geta stormar,
þokur og regn stundum gjört mælingarnar mjög örðugar eða
jafnvel ómögulegar, og þaö er því áríðandi að nota hverja
klukkustund, sem hentug er, ef heilir og hálfir dagar eiga
ekki að falla úr«. Ekki gat stjórnin fallist. á uppástungu
Ohlsen’s um að senda 6 landmælendur tilíslands. kostnaðurinn
var of mikill, en það var afráðið að senda þrjá, auk Ohlsens
foringjana Wetlesen og Frisak.1 Þá var einnig skráð langt
erindisbréf fyrir landmælendur og var þaö samið eptir
uppá-stungum og fyrirlagi Ohlsen’s og Th. Bugge’s, sem þá var
há-skólakennari í stjörnufræði. Hjá Th. Bugge tóku allir
for-ingjar þeir, seiri sendir voru, próf í stjörnufræði og
landtnæl-ingu. Aðalefni erindisbréfs þess, sem landmælendur fengu,
var hér um bil á þessa leið:2
Mælingaraðferðin átti að vera hin saina sem brúkuð var
við strendur Noregs og Danmerkur, nema hvað á Islandi átti
aðeins að mæla einfalda þríhvrningaröð með ströndum fram.
sem lyki um land allt. Hinir einstöku þríhyrningar áttu að
vera vei valdir, ekki of smáir og hornin hvorki of hvöss né
of sljó; sérhvert. horn þrihyrninganna skal mæla svo vel, að
ekki muni á þeim samlögðum (180°) nema fáum sekúndum.
svo þessu verði framgengt skal opt mæla hvert horn. Milli
hinna þriggja landmælenda skal verkum skipt á þann hátt.
að einn þeirra leitar að mælingarstöðum, byggir vöröur og
setur önnur merki, hinn annar mælir hornin, en hinn þriðji
mælir bugður strandarinnar og landslag í nánd með
mæli-borði. Ef einhver þeirra er fyrr búinn með verk sitt en hinir.
hjálpar hann félögum sínum. Þegar þeir á þenna hátt hafa
farið yfir allstórt svæði, eiga þeir að mæla aukalínu
(Veri-fications-Linje) tneð sötnu stöngum eins og þeir áður mældu
’) Wetlesen var settur í embætti þetta 13. apríl 1803. Frisak 4.
mai s. á. Sbr. Minnisverð tiðindi III. bls. 258.
J) Lovsamling for Island VI. bls. 630—634.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>