Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
278
séu gjörðar í Reykjavík, verði að senda þangað
stærðfræðis-menntaðan foringja. Ef nú þetta ekki getur orðið framkvæmt
á næsta ári, býðst Scheel til að dvelja á Islandi líka suinarið
1814, þó heilsa sín sé nú mjög farin aó bila.
Vorið 1813 bvrjuðu mælingarnar mjög snemtua: hinn 27.
apríl fór Frisak sjóveg út Eyjafjörð til þess að fást við
mæl-ingar þær, sem ekki hafði lánast að ljúka við árinu áður.
Frisak fór út fyrir G.jögur að Þönglabakka. þá lá snjór í
Fjörðum frá efstu fjallagnýpum niður i sjó og sá hvergi dökkan
díl; þar sem Frisak fór um ströndina til mælinga var
all-staðar hnésnjór unz hann kom í Náttfaravíkur, þar var
snjó-minna. Optast var veðrið gott. nema 9.—14. maí voru
kaf-aldshríðar á norðan; Frisak hélt mælingunum áfram út á
Tjörnes, þar kom hann 16. maí og hitti Scheel. sem kom
austan úr Axarfirði. Scheel hafði orðið að fara austur á Sléttu
til þess að lagfæra mælingar. því fyrir klaufaskap manns, sem
átti að byggja vörður, höfðu þrír mælingastaðir orðið ónýtir.
Scheel fór aó heiman 29. apríl austur í Laxárdal. yfir
Revkja-heiði í Axarfjörð og þaðan upp á heiðar til þess að mæla
Ottarshnúk og Sandfell; þá var mikil ófærð af snjóutn og þó
allir réðu frá, brauzt Scheel i þvi að komast á
mælingastað-ina og heppnaðist það vel, þó kuldi væri og víða kafhlaup í
snjóa, enda var gott veður 8 daga framan af maímánuði
meðan hann átti í þessu braski. Hinn 10. mai kom Scheel
aptur úr þessari ferð til Húsavíkur og mældi hina næstu
viku strendur á Tjörnesi.
I aðalferðina lögðu þeir félagar á stað frá Akureyri hinn
17. júní 1813 til þess að Ijúka við þríhvrningamælingar á
Austur- og Suðurlandi.1 Þeir fóru austur sem leið liggur, en
urðu að fara hægt því hestar voru magrir, vegir blautir, gróður
mjög litill og feróin löng. Hinn 20. júní gengu þeir upp á
Vegahnúk milli Víðidals og Möðrudals og mældu þaöan,
ákvörð-uðu þeir legu Möðrudals og ferjustað á Jökulsá, síðar ætluðu
þeir að mæla fjöll austur af Möðrudal, en hindruðust af þoku.
’) H J. Scheel: Dagbog paa Opmaalingsrejserne 3813. Hdrs.
Bókmf. í Kmh. nr. 11, 8°. nær frá 16. júní til 24. ágúst.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>