- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
279

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

279

Loks komust þeir austur í Lón 5. júlí; Jökulsá var þá svo
mikil og í svo mörgum kvíslum, að það tók 55 mínútur að
ríða hana. I Þinganesi við Hornafjörð varð Scheel eptir, en
Frisak liélt áfram ferðinni um Mýrar og Suðursveit, hann
hafði jafnan tvo fvlgdarmenn og annar þeirra, er hét
Stein-grimur Olafsson, hafði verið í þjónustu hans síðan 1806.1
Frisak vildi láta hlaða vörðu í Hrollaugseyjum, en fékk þvi
ekki framgengt, því Þorsteinn bóndi á Felli neitaði að levfa
það, þvi það mundi styggja útselinn, auk þess væri opt. ekki
nema einu sinni á sumri hægt að lenda þar fyrir brimum.
Frisak varð að klöngrast upp á ýmsa tinda á jökulröndinni
og var það opt mjög örðugt. Til þess varðan á Hestgerðishnúk
sæist, varð að hengja á hana hvítt vaðmál. Jökulsá á
Breiða-merkursandi var ófær og varó Frisak að fá sér menn til þess

r

að ryója veg yfir jökulinn. A Ingólfshöfóa hafði Davið Jónsson
(Mála-Davíð) á Hofi eptir tilvisan átt aö byggja vöróu sumarið
áður (1812), en reisti hana á skökkum stað, svo hana varð
að rífa og byggja annarsstaðar. Hinn 14. júlí fór Frisak yfir
bættulegar jökulkvislir út í Ingólfshöfða og fylgdi Jón Arnason
hreppstjóri á Fagurhólsmýri honum þangað, hinn sami maður
fylgdi honum einnig upp á hæzta tind á Oræfajökli 19. júlí 1813
og var það hin mesta glæfraför.2 Otal jökulsprungur urðu á
vegi þeirra, og lá snjór yfir mörgurn þeirra, svo þar var hin
mesta mannhætta yfir að fara: þeim tókst þó með varúð að fikra
sig áfram og krækja milli sprungna með því allstaðar að reyna
fvrir sér með broddstöfum. en jökulgangan stóð yfir i 13
klukkustundir; örðugast var að komast upp á efsta hnúkinn
(Hvanndalahnúk), þar urðu þeir að höggva 86 þrep í ísinn til
þess að komast upp. Eins og fyrr hefir verið frásagt, gekk
Sveinn Pálsson fyrstur upp á Öræfajökul 11. ágúst 1794, hann
gekk upp á Hnapp, þá gekk Frisak upp á Hvanndalahnúk
1813 sem hér segir, og löngu seinna (1891) komst Howell

’) Fylgdarmaður þessi fékk auk fæðis 20 pund smjörs í kaup
á viku.

’) Fyrir ferðina út í Ingólfshöfða fékk Jón Arnason 32 sk., en í
fylgdarkaup upp á Öræfajökul 1 rd. 32 sk.!

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0287.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free