- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
280

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

280

hinn enski upp á hinn sama hnúk. Rigningar voru mjög
tiðar um sumarið í þeim héruðum; frá 4. júlí til 12. ágúst
voru fáir dagar þurrir og aldrei alveg þokulaust, eptir það til
hins 22. ágúst var góðviðri og heiðríkjur, svo á þeim tima
voru litlar frátafir. Frisak gekk upp á marga hnúka og fjöll,
en mjög átti hann illt með að fá verkamenn til þess að hlaða
vörður, þvi allir voru við slátt og hevþurk, þegar vel viðraði,
varö hann því opt sjálfur að byggja vörðurnar. Scheei var
á eptir og mældi þrihvrninga til mælistaða þeirra, sem Frisak
setti, og varð hann því við og viö að senda menn til Scheels
til þess að sk}’ra honum frá, hvar vöröur heföu verið hlaðnar.
Jón bóudi á Núpsstaó var þrisvar sinnum sendur upp á
Lóma-gnúp til þess að bvggja þar vörðu, en varð tvisvar frá að
hverfa sakir þoku. Hinn 18. ágúst reisti Frisak seinustu
vörð-una og var þá lokió ákvörðun mælistaða kringum land allt.
I Skaptafellssýslum var mjög örðugt að finna góða mælistaði af
því jökulbreiður eru á aðra hönd, en marflatir eyðisandar
milli fjalls og fjöru; það gekk því illa að leggja
þríhyrninga-netið svo, að hornin gætu orðið mátulega stór. Frisak ætlaði
utan um haustió með búslóð sína alfarinn, flýtti sér því heim
til Akureyrar, fór Kjalveg og kotn á Eyjafjörð hinn 30. ágúst.
Þar bjóst hann við, að tvö kaupför lægi og hafði frétt til
þeirra, en þegar hann kom norður, voru skipin bæði farin til
Siglufjarðar. Frisak sendi þegar mann gagrigert þangað til
þess að vita, hvort hann gæti fengió far i miðjum
september-mánuði, þvi hann var enn óbúinn með konu, 5 ungbörn og
búslóð alla. Illviðri töfóu fyrir sendimanni og þegar hann
kom á Siglufjörð voru skipin bæði seglbúin til brottfarar.
Frisak varö þvi að setjast aptur og dvelja veturinn 1813—
1814 á Akurevri.

Nú er að segja frá ferðum Scheels; hann varð að dvelja
i Nesjum til hins 22. júlí sökum þess aó jafnan lá þoka á
Klifatindi (Vestur-horni), sem hann þurfti að ganga upp á,
klifraði hann þangað tvisvar sinnum árangurslaust. en þriðja
ferðin lánaðist. Hinn 25. júli gekk Scheel yfir jökul upp á
Bakkatind og mældi þar í rokveðri og regni; á Reynivöllum i
Suöursveit varð hann að bíða í 17 daga sakir þoku og rign-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0288.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free