- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
310

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

310

langan Þórisdal ofan í Kaldadal og yfir í Okið, var þá komin
miðuraptan og sólin var þá rétt yfir Þórisdal miðjum. Okinu
og Kaldadal; hvar af auðsært er, að Þórisdalur liggur
hérum-bil í austur og vestur, austur undan Okinu, en Kaldidalur
nærfellt í útsuður og landnorður«. Frá Hlóðuvöllum höfðu
þeir verið 15 stundir á leiðinni, einkum sakir ófærðar og af
því hestarnir voru til trafala. Siðan gengu þeir áfram
mið-hliðis þangnð til þeir komu inn á miðja austurhlíð Kaldadals
og var þar mjög bratt niður undan þeim, svo þeir sneru
aptur til hestanna á jöklinum og fóru svo skemmri leið til
baka, var þá lika greiðfærara af því frost var um kvöldið og
nóttina svo víða hélt uppi. Þegar Björn Gunnlaugsson er
búinn að segja frá feróinni, lýsir hann dalnum með
saman-burði við Grettissögu. Bárðarsögu og aðrar æfintýrasögur. Að
landgæðum var dalurinn hinn fráleitasti frá þvi, er segir i
Grettissögu, þvi ekki fundu þeir félagar i honum eitt einasta
grasstrá eða mosaþúfu, ekkert var þar að sjá nema ís og
urðir. Þórisdalur er luktur jöklum á báða vegu og snýr annað
op hans að Klakk, en hitt að Kaldadal, að norðanverðu eru
brattir klettar og standberg, sem jöklar ganga fram á, en að
sunnan er aflíðandi jökulhlíð. T fórisdal eru tvö fell, sern
eru samföst að neðan og mynda höfða yfir þveran dalinn:
þar fyrir vestan klýfst Þórisdalur í tvo dali, gengur
aðaldal-urinn beint til vesturs og liggur ofan á brúnir Kaldadals, en
afdalur til útnorðurs, eptir honum rennur lækur niður i
gljúf-ur, sem liggur um höfuðdalinn til Kaldadals fyrir ofan eða
sunnan Hádegisfell upp yfir T.angahrygg norðan til og er þetta
Hádegisfell hnúkur sá. sem skilur dalina.1

Þegar Björn Gunnlaugsson var búinn að kanna í’órisdal,
fór hann aptur niður að Þingvöllum og svo um Biskupstungur
og Hreppa austur á Land, þaðan að Keldum á Rangárvöllum
og svo Fjallabaksveg syðri austur í Skaptártungu, svo fór

’) Bókmenntafélagsstjórnínni á íslandi var ekki um jtessa ferð í
Þórisdal og Árni Helgason skrifar (26. ág. 1835) Þorgeiri
Guðmunds-syni og segir meðal annars: »þórisdal hefir hann (B. G.) aptur skoðað,
hvað aldrei skyldi verið hafa<, þótti Árna það hirin mesti óþarfi. »þvi
dalverpið skal vera aldeilis graslaust, já! eg trúi þar fáist ekki mosi«.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0318.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free